Fjárlög, framtíðarsýn og diplómanám sjúkraliða – Ný tækifæri
Þegar meirihluti fjárlaganefndar lauk störfum sínum í vikunni urðu ákveðin tímamót sýnileg. Fjárlögin fyrir árið 2026 leggja grundvöll sem skiptir máli fyrir heilbrigðisþjónustuna, og fyrir sjúkraliða sérstaklega. Því það sem nú er skrifað í fjárheimildir, breytingartillögur og yfirlýsingar nefndarinnar er skýrara en áður.

Það þarf að virkja þann mannauð sem þegar er til staðar í heilbrigðiskerfinu. Og þar gegna sjúkraliðar lykilhlutverki.
Það sem skiptir mig máli er að rökvísi stéttarinnar, sem við höfum haldið á lofti árum saman, virðist loksins hafa náð eyrum. Fjárlögin styðja nú við þjónustu sem krefst meiri teymisvinnu, dýpri hæfni og meiri sérhæfingar. Þjónustu þar sem sjúkraliðar og sérhæfðir sjúkraliðar starfa í heilbrigðiskerfinu. Það er löngu orðið ljóst að grunnnám sjúkraliða eitt og sér dugir ekki til að mæta þeim kröfum sem heilbrigðisstofnanir standa frammi fyrir. Fagnám fyrir starfandi sjúkraliða hefur lengi verið svar sem margir hafa beðið eftir án þess að kannast við það.
Með fjárlögum ársins 2026 sjáum við skýr merki um breytingu á viðhorfi. Þegar fjárlaganefnd leggur sérstaka áherslu á að efla menntun og þjálfun heilbrigðisstarfsfólks í fremstu línu þjónustunnar, er það ekki aðeins fjárhagsleg ráðstöfun, heldur bein viðurkenning á því að menntun, hæfni og fagleg staða sjúkraliða þarf að fylgja þróun kerfisins. Þessi viðurkenning birtist m.a. í 100 milljóna króna framlagi til þjálfunar, 700 milljóna króna styrk til endurhæfingarstofnana þar sem sjúkraliðar gegna mikilvægu hlutverki, og í 345 milljóna viðbótarfjármagni til meðferðarúrræða sem byggja á þverfaglegri teymisvinnu í geð- og fíknimeðferð, sjá hér: Nefndarálit: fjárlög 2026
Þessi breyting sýnir að diplómanám fyrir starfandi sjúkraliða er ekki lengur eingöngu fagleg viðbót, heldur raunverulegt kerfisúrræði sem á að nýtast í rekstri og heilbrigðisþjónustu. Þegar slík þróun á sér stað, er ekki hægt að byggja þjónustu á gömlum forsendum. Við verðum að nýta hæfni starfsfólksins sem þegar hefur sérmenntun. Þar koma sjúkraliðar sterkir inn. Þeir sinna þessum verkefnum, víða, faglega og með ábyrgð. Að halda þeirri hæfni utan skipulags og starfsheita er sóun.

Frá útskrift nema í diplómanámi fyrir starfandi sjúkraliða 2025
Með þeim fjárveitingum sem fjárlaganefnd hefur nú lagt til er lagður grunnur að því að sú hæfni sem þegar býr í stétt sjúkraliða nýtist eins og hún á að gera. Þótt það sé ekki orðað beinum orðum í nefndarálitinu, þá eru skilaboðin þar: teymisvinna, menntun, bráðaþjónusta, endurhæfing, heimahjúkrun, meðferðarúrræði. Starfssvið sem sjúkraliðar gegna lykilhlutverki.
Ljóst er að krafa Sjúkraliðafélags Íslands um að skapa skýrar stöður fyrir sérhæfða sjúkraliða er ekki eingöngu réttlætismál. Hún er hagræðingarmál. Það er einfaldlega hagkvæmara að virkja hæfni sjúkraliða og bjóða þeim raunhæfan starfsþróunarferil innan eigin stéttar, þannig að þeir velji að vera sjúkraliðar til framtíðar, heldur en að viðhalda vítahring undirmönnunar. Og það er ekki bara við sem segjum það. Fjárlögin sjálf opna nú á þessa leið.
Við sem fagfélag höfum nú það hlutverk fram undan að tryggja að diplómanám sjúkraliða verði ekki aðeins viðurkennt, heldur fest í sessi sem burðarás í framtíð sjúkraliðastarfsins.