Kynningarefni
Starf sjúkraliða er fjölbreytt og gefandi. Það felst í því að veita hjúkrun, aðstoð og endurhæfingu þeim sem ekki geta athafnað sig í daglegu lífi vegna sjúkdóma, öldrunar eða fötlunar. Engir tveir dagar eru eins í starfi sjúkraliða, ný lífsreynsla setur mark sitt á hverja stund í samskiptum við fólk. Þeir vinna á mörgum og ólíkum stöðum innan heilbrigðiskerfisins og skjólstæðingarnir eru á öllum aldri. Hér að neðan má nálgast kynningarbæklinga um sjúkraliðanám á PDF sniði.

Landsliðið í seiglu
Átaksverkefnið Sjúkraliði.isKynntu þér sjúkraliðanám og vertu hluti af liðinu!

Útgáfa
Kynntu þér sjúkraliðanám og vertu hluti af liðinu
Myndbönd úr kynningarátaki 2025.

Gallup könnun
Vitund um störf sjúkraliða
Niðurstöður Gallup könnunar sýna að viðhorf almennings til starfa sjúkraliða er mjög jákvætt og sjúkraliðar taldir þjóna mikilvægu hlutverki í heilbrigðisþjónustu á Íslandi.