Beint í efni

Fulltrúaþing Sjúkraliðafélags Íslands

Fulltrúaþing er æðsta ákvörðunarvald félagsins og mikilvægur vettvangur lýðræðislegrar umræðu, stefnumótunar og ákvarðanatöku. Þar koma saman fulltrúar sjúkraliða víðs vegar að af landinu til að ræða stöðu stéttarinnar, hagsmunamál félagsmanna og verkefni félagsins til framtíðar.

Á þinginu eru lagðar fram skýrslur stjórnar og nefnda, ársreikningar og fjárhagsáætlanir, auk þess sem ályktanir eru ræddar og samþykktar og kosið til trúnaðarstarfa þegar við á. Þingið gegnir lykilhlutverki í að móta áherslur félagsins og tryggja að rödd sjúkraliða heyrist í baráttunni fyrir bættum kjörum, faglegri viðurkenningu og sterkari stöðu stéttarinnar.

Fulltrúaþing

Mínar síður

Fundargerðir fulltrúaþings er hægt að nálgast á Mínum síðum undir flokknum "Skjöl"