Launagreiðendur
Greiðslur til Sjúkraliðafélags Íslands berast til bókunarmiðstöðvar BSRB
Stéttafélagsnúmer Sjúkraliðafélags Íslands er 619

Skilagreinar á SAL formi (textaskrár) sendast á netfangið skbibs@bsrb.is
Skilagreinar á XML formi sendast á vefþjónustuna https://globalrest.dk.is/bsrb/FundPayments
Nánar upplýsingar veitir Björg Geirsdóttir hjá BSRB, netfang bjorg@bsrb.is
Félagsgjald sjúkraliða til Sjúkraliðafélags Íslands er 1,4% af öllum launum en mótframlag er mismunandi eftir kjarasamningum.
Mótframlag: | |||||||
Kjarasamingur | Félagsgjald | Starfsmennta-sjóður | Starfsþróunar-sjóður | Fræðslu-sjóður | Orlofsheimila-sjóður | ||
Ríkissjóður | 1,40% | 0,32% | 0,50% | 0,25% | 0,50% | 0,75% | |
SFV | 1,40% | 0,42% | 0,65% | 0,50% | 0,75% | ||
Sveitarfélög | 1,40% | 0,36% | 0,60% | 1,00% | 0,75% | 2,20% | |
Reykjavíkur-borg | 1,40% | 0,30% | 0,50% | 0,25% | 0,50% | 0,75% |
Endurhæfingarsjóður (Greitt til lífeyrissjóðs)
Framlag atvinnurekanda til Endurhæfingarsjóðs er 0,10% af öllum launum sjúkraliða og er skilað með lífeyrissjóðsiðgjöldum.
Framlag í séreignasjóð
Greiði starfsmaður í séreignasjóð 2 eða 4% greiðir vinnuveitandi viðbótarframlag 2% á móti framlagi.
Kjarasamningsbundnar tryggingar
Launagreiðandi þarf að kaupa tryggingu hjá tryggingafélagi m.t.t. ákv. 7. kafla um tryggingar í kjarasamningi félagsins.
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
Til þess að starfsmenn öðlist rétt til aðildar að Lífeyrissjóðum ríkisstarfsmanna þarf atvinnurekandi að ganga frá kjarasamningi við stéttarfélag opinberra starfsmanna.
Brú lífeyrissjóður
Áður Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga. Starfar eftir sömu meginreglum og LSR. Sjóðurinn býður upp á valmöguleika sem sjóðsfélagar þurfa að kynna sér.
Ákvörðun félagsgjalda
Samkvæmt lögum félagsins ákveður fulltrúaþing árlega gjöld félagsmanna í félagssjóð.