Starfsþróun
Starfsþróun sjúkraliða byggir á því að með aukinni reynslu, menntun og þjálfun geta þeir tekið að sér fjölbreyttari og ábyrgðarfyllri verkefni. Nýútskrifaðir sjúkraliðar hefja störf við almenna umönnun, en með aukinni reynslu og þekkingu fá þeir tækifæri til að sinna flóknari verkefnum.


Símenntun hefur áhrif á störf og laun
Símenntun er mikilvægur þáttur í starfsþróun sjúkraliða og styrkir bæði faglega hæfni og starfsöryggi. Með reglulegri fræðslu geta sjúkraliðar eflt þekkingu sína, bætt vinnubrögð og tekið að sér ný og fjölbreytt verkefni. Fjölmörg námskeið standa til boða í gegnum fræðslusetur, svo sem Framvegis, sem heldur námskeið í samráði við Sjúkraliðafélag Íslands og fagráð sjúkraliða. Námskeiðin eru sniðin að þörfum stéttarinnar og metin til launa samkvæmt kjarasamningum.
Í kjarasamningum hafa verið tekin upp svokölluð símenntunarþrep sem umbuna fyrir viðbótarþekkingu og hvetja sjúkraliða til að sækja fræðslu sem nýtist beint í starfi. Þetta fyrirkomulag endurspeglar faglega ábyrgð stéttarinnar og tryggir að menntun og hæfni sjúkraliða komi fram í starfi þeirra, launum og starfsþróun. Aukin menntun og þekking skilar sér í öflugri fagmennsku, öruggari þjónustu og betri gæðum í heilbrigðisþjónustu.
Sjúkraliðar sem sækja námskeið og efla færni sína styrkja stöðu sína og stuðla að framþróun í heilbrigðiskerfinu.

Viðbótarnám
Háskólinn á Akureyri býður upp á 60 eininga fagnám til diplómaprófs fyrir starfandi sjúkraliða, fyrsta háskólanámi sinnar tegundar á Íslandi. Námið er ætlað þeim sjúkraliðum sem vilja dýpka þekkingu sína, efla sérhæfingu og auka faglega hæfni. Diplómanámið tekur tvö ár og er skipulagt með hliðsjón af vinnu sjúkraliða. Fyrirlestrar eru teknir upp og stuttar staðlotur haldnar á Akureyri 1–2 sinnum á önn, þannig að námið hentar nemendum hvar sem þeir búa. Nemendur þurfa að starfa á sínu sérsviði samhliða náminu, þar sem það byggir á blöndu fræðilegrar kennslu og verklegrar þjálfunar á vettvangi. Boðið er upp á tvö kjörsvið:
- Öldrunar- og heimahjúkrun, með áherslu á heildræna umönnun, samskipti, notkun velferðartækni og fræðslu til aðstandenda.
- Samfélagsgeðhjúkrun, sem snýr að geðheilbrigðisþjónustu, endurhæfingu og þverfaglegri teymisvinnu.
Markmið námsins er að búa sjúkraliða undir sérhæfðari og ábyrgðarmeiri störf innan heilbrigðisþjónustunnar. Nemendur þjálfast í teymisvinnu, samskiptum, leiðtogahlutverkum og klínískri ákvörðunartöku, færni sem eykur bæði faglegt sjálfstæði og gæði þjónustunnar.

Áhrif sérnáms á starf og viðurkenningu
Diplómanámið hefur eflt stöðu sjúkraliða og skapað formlega leið til sérhæfingar. Menntunin gerir sjúkraliðum kleift að axla meiri ábyrgð, sinna flóknari verkefnum og taka virkan þátt í þróun heilbrigðisþjónustunnar. Margir starfa eftir nám sem teymisstjórar, eða sérhæfðir starfsmenn í öldrunar- og geðhjúkrun, í heimahjúkrun sem taka að sér viðameiri verkefni. Þessi þróun hefur loks verið viðurkennd í kjarasamningum / stofnanasamningum, þar sem aukin menntun og sérhæfing leiðir til breyttrar launaflokkunar og aukinnar ábyrgðar í starfi.
Með viðbótarnámi við Háskólann á Akureyri hafa sjúkraliðar fengið nýjan vettvang til vaxtar og sérhæfingar. Námið eykur faglega viðurkenningu stéttarinnar og undirstrikar mikilvægi sjúkraliða í nútíma heilbrigðisþjónustu, frá grunnstarfi til sérhæfðra hlutverka með leiðtogahlutverk og aukna ábyrgð.