Um sjúkraliðanám
Sjúkraliðanámið er hagnýtt og faglegt starfsnám sem undirbýr nemendur fyrir ábyrgðarmikil störf í heilbrigðisþjónustu. Námið sameinar fræðilegan grunn og verklega þjálfun þar sem nemendur læra að annast hjúkrun, umönnun og endurhæfingu fólks á öllum aldri. Sjúkraliðanám hentar þeim sem hafa áhuga á að vinna með fólki, sýna umhyggju og stuðla að heilsu og vellíðan annarra. Lögð er áhersla á fagmennsku, siðferðisvitund, samskiptahæfni og ábyrgð, enda gegna sjúkraliðar lykilhlutverki í teymisvinnu innan heilbrigðisþjónustunnar. Menntunin veitir starfsréttindi sem sjúkraliði og er mikilvægur þáttur í að tryggja gæði og öryggi heilbrigðisþjónustu á Íslandi.

Helstu upplýsingar um sjúkraliðanám
Sjá aðalnámskrá sjúkraliðabrautarSkipulag sjúkraliðanáms
Sjúkraliðanámið sameinar þekkingu og verklega reynslu þar sem þú lærir að hjálpa fólki og vinna í teymi.
Vinnustaðanám
Starfsnámið er krefjandi og gefandi og veitir nemendum dýrmæta reynslu úr heilbrigðisþjónustunni.
Starfsleyfi
Starfsleyfi sjúkraliða veitir rétt til að starfa af fagmennsku og ábyrgð í heilbrigðisþjónustu.
Landsliðið í seiglu
Átaksverkefnið Sjúkraliði.isKynntu þér sjúkraliðanám og vertu hluti af liðinu!

Raunfærnimat
Raunfærnimat gefur einstaklingum tækifæri til að láta meta þá þekkingu og reynslu sem þeir hafa þegar aflað sér í starfi eða með óformlegu námi. Markmiðið er að stytta leiðina til starfsréttinda sjúkraliða með því að meta raunverulega færni til eininga á sjúkraliðabraut. Í raunfærnimati er ekki spurt hvar eða hvernig þú lærðir, heldur hvort þú hafir færnina. Metin er bæði starfsreynsla og þekking, hvort sem hún er fengin í gegnum formlegt nám, störf, frístundir eða námskeið utan skólakerfis. Ef niðurstaðan sýnir að þú hafir þegar aflað þekkingar og hæfni sem samsvarar hluta námsins, er hægt að stytta námið í framhaldinu.

Sjúkraliðabrú
Sjúkraliðabrú er sérstök námsleið sem veitir ófaglærðu fólki með langa starfsreynslu í umönnunarstörfum tækifæri til að ljúka formlegu námi og öðlast starfsréttindi sem sjúkraliði. Námið var þróað í samstarfi mennta- og barnamálaráðuneytisins, fjölbrautaskóla landsins sem mennta sjúkraliða og Sjúkraliðafélags Íslands, með það að markmiði að efla menntun, viðurkenningu og starfsöryggi þeirra sem þegar starfa í umönnun og hjúkrun. Tilgangur náms á sjúkraliðabrú er að skapa raunhæfa og sveigjanlega leið til starfsréttinda fyrir fólk sem hefur aflað sér þekkingar og færni í starfi. Námið byggir á því að meta fyrri starfsreynslu og nám, bæði formlegt og óformlegt, til styttingar á námi á sjúkraliðabraut. Þannig er viðurkennt að hæfni og kunnátta geta verið til staðar, jafnvel þótt formleg menntun hafi ekki verið lokið.
Skólar sem bjóða upp á sjúkraliðabraut
Fjölbrautaskólinn við Ármúla
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Fjölbrautaskóli Suðurlands
Fjölbrautaskóli Vesturlands
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum
Menntaskólinn á Ísafirði
Verkmenntaskóli Austurlands
Verkmenntaskólinn á Akureyri
Háskólinn á Akureyri - Framhaldsnám
-2000x1810.jpg&w=3840&q=75)
Fagnám til diplómaprófs fyrir starfandi sjúkraliða
Háskólinn á Akureyri býður upp á fagnám til diplómaprófs fyrir starfandi sjúkraliða á kjösviðum samfélagsgeðhjúkrunar og öldrunar- og heimahjúkrunar. Námið er 60 ECTS eininga viðbótarnám á grunnstigi háskóla og veitir diplómapróf.
Námið er skipulagt yfir fjögur misseri, eða tvö ár, og gert er ráð fyrir að nemendur starfi samhliða náminu innan viðkomandi starfssviðs. Markmiðið er að efla faglega hæfni sjúkraliða og styðja þá í sérhæfingu innan heilbrigðisþjónustunnar.
Sjúkraliðanám
Sjúkraliðanám, þar sem þekking, umhyggja og mannleg tengsl mætast.

Fagmennska og siðareglur
Starf sjúkraliða byggir á traustum siðferðisgrunni þar sem virðing, ábyrgð og trúnaður eru leiðarljós í öllu starfi. Í náminu er lögð áhersla á að nemendur tileinki sér siðareglur stéttarinnar og skilji þá faglegu ábyrgð sem fylgir starfi í heilbrigðisþjónustu. Sjúkraliðar bera ábyrgð á eigin störfum og skyldu til að sýna skjólstæðingum virðingu, mannlega umhyggju og faglega nærveru. Þeir skulu gæta fyllstu þagmælsku og trúnaðar, vinna af trúmennsku og samviskusemi og viðhalda þekkingu sinni og hæfni í þágu öryggis og velferðar annarra. Siðareglur sjúkraliða eru leiðarljós í daglegu starfi og endurspegla þau gildi sem fagið byggir á.