Raunfærnimat
Raunfærnimat gefur einstaklingum tækifæri til að láta meta þá þekkingu og reynslu sem þeir hafa þegar aflað sér í starfi eða með óformlegu námi. Markmiðið er að stytta leiðina til starfsréttinda sjúkraliða með því að meta raunverulega færni til eininga á sjúkraliðabraut. Í raunfærnimati er ekki spurt hvar eða hvernig þú lærðir, heldur hvort þú hafir færnina. Metin er bæði starfsreynsla og þekking, hvort sem hún er fengin í gegnum formlegt nám, störf, frístundir eða námskeið utan skólakerfis. Ef niðurstaðan sýnir að þú hafir þegar aflað þekkingar og hæfni sem samsvarar hluta námsins, er hægt að stytta námið í framhaldinu.

Raunfærnimat á sjúkraliðabraut er ætlað fólki sem:
- hefur reynslu af starfi við umönnun, hjúkrun eða félagslega þjónustu,
- vill ljúka sjúkraliðanámi á styttri tíma,
- og hefur áhuga á að fá menntun sína og starfsreynslu formlega metna.
Raunfærnimatið hentar einnig þeim sem búa utan höfuðborgarsvæðisins, þar sem ferlið fer að mestu fram rafrænt og er því aðgengilegt óháð búsetu.