Námsmat
Sjúkraliði getur safnað símenntunarstundum sem telja til launaþrepa/flokka hækkana með því að skila inn viðeigandi námsgögnum vegna náms eða námskeiða.
Námsmatinu er ætlað að tryggja að sjúkraliðar þekki skyldur sína og virði siðareglur stéttarinnar, viðhaldi þekkingu sinni og faglegri færni og tileinki sér nýjungar er varða starfið.


Framvegis
Framvegis er að hluta til í eigu Sjúkraliðafélags Íslands. Þar er boðið upp á námskeið sem eru sérsniðin að þörfum sjúkraliða. Námskeiðin eru flest starfstengd og metin til launa (telja til símenntunarstunda). Námskeiðin eru kennd bæði í staðnámi og fjarnámi.
Senda þarf beiðni um námsmat í gegnum Mínar síður með rafrænum skilríkjum og ýta á „Senda námsmatsbeiðni“.
Hafðu þá samband við verkefnastjóra fræðslumála í síma 5539494
- Já, við getum gert það ef óskað er eftir því. Senda þarf tölvupóst á netfangið slfi@slfi.is. Minnt er á að hægt er að nálgast námsmatið inn á Mínum síðum.
- Sjúkraliði ber þó ávallt sjálfur ábyrgð á að námsmatið berist til síns yfirmanns og að hafa samband við launadeildina.
Hægt er að nálgast námsmatið inn á Mínum síðum
Stundafjöldi námskeiða til mats á símenntunarstundum eru að lágmarki 3 stundir.
Námskeið þarf að tengjast starfinu eða viðfangsefnum sjúkraliða í starfi.
Já, það er hægt að fá það metið. Lágmarksfjöldi feininga til mats eru 30 og geta verið að hámarki 180 stundir.
Fagnám til diplómaprófa fyrir starfandi sjúkraliða er ekki metið til símenntunar þar sem slíkt myndi leiða til tvítalningar, sem er óheimilt samkvæmt reglum um mat á símenntun.
Fyrst þarf að sækja um aðild að félaginu með því að senda inn umsókn um aðild. Senda þarf inn afrit af viðurkenningarskjölum, námsyfirliti og öðrum gögnum á netfangið slfi@slfi.is. Mikilvægt er að upplýsingar um fjölda stunda komi fram.
Sjúkraliði ber ábyrgð á að koma námsmatinu áfram til síns yfirmanns og að hafa samband við launadeildina.
Sjúkraliðafélagið sendir námsmatið á viðeigandi launadeild þegar viðkomandi hefur náð næsta þrepi/launflokki.
Launasetning er alltaf á ábyrgð vinnuveitanda. Ef spurningar vakna um launasetningu, þá er velkomið að heyra í félaginu.
Háskólamenntun er metin ef hún nýtist sjúkraliðum í starfi.
Lágmarksfjöldi til mats eru 30 ECTS einingar og getur mat vegna þess að hámarki verið 180 stundir.
Allt erlent nám þarf fyrst að láta meta í gegnum ENIC/NARIC. Þegar svar frá þeim hefur borist, þá má senda inn beiðni um námsmat og matið verður skoðað.
Það þarf að skoða sérstaklega um hvaða námskeið er um að ræða áður en ákvörðun er tekin um hvort það verði metið til símenntunarstunda.