
Styrkir og sjóðir
Sjúkraliðar hafa aðgang að ýmsum sjóðum sem styðja við fræðslu, starfsþróun og velferð. Félagsfólk getur sótt um styrki úr Starfsmenntasjóði og Starfsþróunarsjóði, en allar umsóknir eru rafrænar og fara í gegnum Mínar síður. Einnig er hægt að sækja um heilsutengda styrki úr Styrktarsjóðnum Klett og orlofskosti úr Orlofsheimilasjóði. Stofnanir, sveitarfélög og sjálfseignarstofnanir geta að auki sótt um styrki úr fræðslu- og starfsþróunarsjóðum, að uppfylltum skilyrðum þeirra.
Starfsþróunarsjóður
Markmið sjóðsins er að skapa tækifæri til vaxtar, nýrrar þekkingar og öflugrar starfsþróunar sjúkraliða. Sjóðurinn styrkir bæði einstaklinga og stofnanir í að efla þekkingu og færni sjúkraliða.
Starfsmenntasjóður
Markmið sjóðsins er að bæta möguleika félagsmanna til að auka menntun sína og tileinka sér framfarir og tæknibreytingar á sínu sérsviði. Styrkhæf verkefni þarf að varða starfið, fagsvið eða starfsþróun umsækjanda.
Fræðslusjóður
Fræðslusjóður styður stofnanir og verkefni til framþróunar sem stuðla að markvissri símenntun sjúkraliða. Einnig til að auka möguleika stofnana til að þróa starfsemi sína í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru til starfseminnar.
Orlofsheimilasjóður
Orlofsheimilasjóður býður félagsfólki upp á fjölbreytt orlofshús innanlands og utan, auk gjafabréfa í flug, ferðaávísana, afslátta og fleira sem auðveldar skipulagningu frísins.
Styrktarsjóðurinn Klettur
Styrktarsjóðurinn Klettur styrkir félagsmenn þegar veikindi eða önnur áföll gera vart við sig með dagpeningagreiðslum. Að auki eru veittir styrkir sem hvetja til heilsueflingar og forvarna.
Vinnudeilusjóður
Vinnudeilusjóður tryggir félagsmönnum stuðning ef til verkfalls eða annarra vinnudeilna kemur. Fjármunir sjóðsins eru til að standa undir greiðslum til félagsmanna á meðan kjaradeilur standa yfir. Sjóðurinn er fjármagnaður með 10% af félagsgjöldum.

Gott að vita
Mikilvægt er að hengja öll viðeigandi gögn við umsóknina áður en hún er send inn. Upphæðir styrkja miðast við framlagða reikninga. Gerð er krafa um að reikningar séu sannanlega greiddir. Einungis eru veittir styrkir vegna reikninga sem eru í nafni umsækjanda en sjóðurinn greiðir ekki kostnað nema hann hafi sannanlega lagst til af umsækjanda. Samþykktar umsóknir þar sem öll gögn liggja fyrir eru greiddar út að jafnaði í vikulok.