Beint í efni

Tímaritið Sjúkraliðinn

Sjúkraliðinn er tímarit Sjúkraliðafélags Íslands og vettvangur þar sem líf, störf og reynsla sjúkraliða fá að njóta sín. Í blaðinu má finna fjölbreytt efni, innblástur úr starfi sjúkraliða, viðtöl við félagsmenn, frásagnir af daglegum verkefnum, umfjöllun um kjaramál, fræðslu og faglega þróun stéttarinnar. Tímaritið er gefið út þrisvar á ári og er ætlað öllum sem hafa áhuga á heilbrigðisþjónustu og störfum hjúkrunar. Með Sjúkraliðanum færðu innsýn í fjölbreytt störf sjúkraliða, áhrif þeirra í samfélaginu og framtíðarsýn stéttarinnar. Fylgstu með nýjustu útgáfunni hér á síðunni.