Beint í efni

Ábyrgð, alúð, umhyggja

Meginhlutverk félagsins er að standa vörð um réttindi, kjör og faglega stöðu sjúkraliða og stuðla að sterkri, sýnilegri og samheldinni stétt.

Ekki missa af!

Skráning

Sjúkraliðadagurinn 2026

Föstudagspistill formanns
Sandra B. Franks, formaður

Þegar kerfið treystir á þolmörkin

Það er stundum eins og heilbrigðiskerfið gangi á einhvers konar þjóðlegri trú um að starfsfólkið reddi þessu alltaf einhvern veginn. Og það er auðvitað þægilegt fyrir kerfið. Þá þarf minna að laga, fjármagna, skipuleggja og hlusta. En við sjúkraliðar vitum betur. Þjónustan verður ekki tryggð með þökkum og fallegum orðum um mikilvægi mannauðs. Hún verður tryggð með góðri mönnun og vinnuaðstöðu, skýru skipulagi og raunverulegri eftirfylgni þegar starfsfólk bendir á það sem betur má fara.

Nánar
Fagið

Sjúkraliðanám

Sjúkraliðanám er hagnýtt starfsnám ef þú hefur áhuga á að hugsa um annað fólk, ert góð/ur í mannlegum samskiptum og átt auðvelt með að sýna öðrum hlýju og nærgætni. Sjúkraliðanám hentar þér einnig ef þú hefur áhuga á mannslíkamanum, andlegri vellíðan fólks og heilsu almennt. Eins ef þú stefnir í frekara nám á heilbrigðisvísindasviði.

Nánar