Sjúkraliðadagurinn og 60 ára afmælishátíð Sjúkraliðafélags Íslands
Opnað hefur verið fyrir skráningu!

Opnað hefur verið fyrir skráningu á Sjúkraliðadaginn og 60 ára afmælishátið Sjúkraliðafélags Íslands. Um er að ræða ráðstefnu, málþing og hátíðardagskrá í samstarfi Sjúkraliðafélags Íslands, Framvegis, Sjúkrahússins á Akureyri og Landspítalans. Viðburðurinn er vettvangur fyrir sjúkraliða og aðra gesti til að efla fagþekkingu, styrkja tengslanet og kynna sér nýjungar í faginu. Dagskráin verður helguð faglegri umræðu, fræðslu og framtíð sjúkraliðastarfsins.

Í ár verður dagurinn sérstaklega hátíðlegur því auk ráðstefnunnar verður haldið upp á 60 ára afmæli Sjúkraliðafélags Íslands um kvöldið með hátíðardagskrá.
Sjúkraliðar eru hvattir til að taka daginn og kvöldið frá og fagna þessum merka áfanga saman.
Dagsetning: Fimmtudaginn 19. nóvember 2026, húsið opnar kl. 9.30
Staðsetning: Hilton hótel Reykjavík
Meðal fyrirlesara verða Dr. Sigrún Gunnarsdóttir sem mun fjalla um starfsumhverfi sjúkraliða og líðan þeirra og Margrét Guðnadóttir, sem mun fjalla um rannsóknir í grunnhjúkrun. Einnig verða spennandi málstofur í boði eftir hádegi.