Starfsmenntasjóður
Markmið sjóðsins er að bæta möguleika félagsmanna til að auka menntun sína og tileinka sér framfarir og tæknibreytingar á sínu sérsviði. Styrkhæf verkefni þarf að varða starfið, fagsvið eða starfsþróun umsækjanda. Félagsmaður getur að hámarki fengið 200.000 kr. samtals í styrk á 24 mánaða tímabili. Sótt er um á Mínum síðum.


Styrkir úr Starfsmenntasjóði
Rétt í sjóðinn öðlast félagsmaður þegar greiðslur félagsgjalda hafa staðið yfir í sex mánuði samfellt. Félagsmaður þarf að vera í starfi þegar hann sækir um styrk og þegar nám/námskeið var greitt. Aðild má ekki rofna lengur en sex mánuði.
Styrkhæf verkefni
ÚthlutunarreglurHvað er styrkt?
Styrkhæf verkefni þarf að varða starfið, fagsvið eða starfsþróun umsækjanda. Sótt er um á Mínum síðum. Félagsmaður getur að hámarki fengið 200.000 kr. samtals í styrk á 24 mánaða tímabili.
Skóla- og námskeiðsgjald
Nám á framhalds- og háskólastigi. Faglegt nám eða námskeið.
Nám á ákveðnu sviði
Nám/námskeið á sviði upplýsingatækni, tölvutækni og tungumála.
Ferðir
Fræðslu- og kynnisferðir innanlands og erlendis, þarf að innihalda að lágmarki 6 klst. í fræðslu.
Ferðakostnaður
Styrkir eru veittir fyrir flugkostnað, gistikostnað, samgöngur til og frá flugvalla. Akstursstyrkur vegna ferðakostnaðar innanlands - sjá nánar í úthlutunarreglum
Ráðstefnu og málþingsgjöld
Ráðstefnur og málþing til að efla og styðja starfsemi trúnaðarmannaráðs.
Annar kostnaður
Próftökugjald, fræðsluerindi, skólabækur, námskeið um starfslok ofl.
Sækja þarf um styrk í gegnum Mínar síður með rafrænum skilríkjum.
Þegar umsókn hefur borist, þá birtist staðfestingartexti og umsóknin kemur fram á yfirliti umsókna á Mínum síðum. Hafi ekkert af þessu gerst, hefur umsókn ekki verið móttekin.
Hægt er að sækja um styrk allt að 12 mánuði aftur í tímann að því gefnu að reikningurinn sé ekki eldri en 12 mánuðir.
Já, það má.
Dæmi:
Ef sótt er um styrk fyrir ráðstefnuferð erlendis og ráðstefnugjald og flug eru greidd fyrirfram, en gisting ekki fyrr en komið er á hótelið, þá má senda fyrstu umsókn fyrir ráðstefnugjaldinu og flugkostnaðinum. Þegar gisting hefur verið greidd er hægt að senda inn aðra umsókn fyrir þann kostnað. Í seinni umsókninni nægir að taka fram að hún sé framhald af þeirri fyrri.
Ef sótt er um styrk vegna kostnaðar sem annar en umsækjandi sjálfur greiddi þarf að fylgja reikningur sem stílaður er á greiðanda. Auk þess þarf að fylgja með millifærslukvittun umsækjanda, fyrir hans hluta, til þess aðila sem greiddi heildarkostnað.
Slíkt tilhögun getur til dæmis átt við í ferðum erlendis, þar sem tveir deila herbergi. Það er hægt að sækja um styrk vegna eigin hlutar í þeim kostnaði að því gefnu að reikningar og millifærslukvittanir liggi fyrir.
Að jafnaði er greitt út einu sinni í viku.
Þegar styrkur hefur verið greiddur er send greiðslutilkynning í tölvupósti.
Félagsmaður sem fer í fæðingarorlof og velur að greiða félagsgjald af fæðingarorlofsgreiðslum viðheldur áunnum réttindum í sjóðnum yfir það tímabil sem greiðslur berast.
Félagsmaður viðheldur áunnum réttindum í sjóðnum á meðan greiddir eru sjúkradagpeningar frá Styrktarsjóðnum Klett. Umsækjandi sem hefur fullnýtt rétt sinn til sjúkradagpeninga nýtur áfram réttinda í sjóðnum í allt að eitt ár, stofni hann ekki til réttinda annarsstaðar. Með umsókn þarf að senda inn staðfestingu á að viðkomandi sé í veikindaleyfi, t.d. afrit af launaseðli og/eða afrit af greiddum sjúkradagpeningum.
Félagsmaður í launalausu leyfi á rétt á styrk samkvæmt reglum sjóðanna að öðrum skilyrðum uppfylltum. Með umsókn þarf að skila inn staðfestingu frá vinnuveitanda þess efnis að viðkomandi sé í launalausu leyfi.
Félagsmaður sem fær greiddan endurhæfingarlífeyri frá Tryggingastofnun heldur réttindum í allt að 12 mánuði. Með umsókn þarf að senda staðfestingu um að viðkomandi sé að fá endurhæfingarlífeyri frá Tryggingastofnun.
Aðild að fræðslusjóðunum fellur niður að sex mánuðum liðnum frá því síðast var greitt félagsgjald.
-2000x1333.jpg&w=3840&q=75)
Stjórn Starfsmenntasjóðs
Starfsmenntasjóðurinn er fjármagnaður með framlagi launagreiðanda í samræmi við ákvæði kjarasamninga. Stjórn sjóðsins er skipuð framkvæmdastjórn ásamt starfsmanni skrifstofu sem fer með fræðslumál félagsins, þau eru:
- Sandra B. Franks, formaður
- Lára María Valgerðardóttir
- Hafdís Dögg Sveinbjarnardóttir
- Magnús E. Smith
- Bjarney K. Haraldsdóttir