Starfsþróunarsjóður
Markmið sjóðsins er að skapa tækifæri til vaxtar, nýrrar þekkingar og öflugrar starfsþróunar sjúkraliða. Sjóðurinn styrkir bæði einstaklinga og stofnanir í að efla þekkingu og færni. Sjúkraliðar geta sótt um styrki til náms, námskeiða og ráðstefna, auk ferðakostnaðar sem tengist starfsþróun. Stofnanir, sveitarfélög og sjálfseignastofnanir geta sótt um styrki til fræðslu- og þróunarverkefna fyrir sjúkraliða sem starfa hjá þeim.


Styrkir til félagsmanna
Félagsmaður öðlast rétt í sjóðinn eftir að hafa greitt félagsgjöld samfellt í tólf mánuði. Til að sækja um styrk þarf félagsmaður að vera í starfi bæði þegar umsóknin er lögð fram og þegar námið eða námskeiðið var greitt. Aðild má ekki rofna lengur en sex mánuði..
Styrkhæf verkefni
ÚthlutunarreglurHvað er styrkt?
Styrkhæf verkefni þurfa að tengjast starfinu, fagsviðinu eða starfsþróun umsækjanda, auk þess má sækja um ferðakostnað.
Skóla- og námskeiðsgjald
Nám á framhalds- og háskólastigi. Faglegt nám, námskeið og ráðstefnur sem tengjast starfsþróun á fagsviði viðkomandi eða heildstætt nám á nýju fagsviði (starfsferilsþróun).
Nám á ákveðnu sviði
Tungumála-, upplýsingatækni- og starfslokanámskeið.
Ferðakostnaður
Styrkir eru veittir fyrir flugkostnað, gistikostnað, samgöngur til og frá flugvöllum. Aksturstyrkur vegna ferðakostnaðar innanlands.
Styrkhæf verkefni
ÚthlutunarreglurStyrkupphæð
Til þess að félagsmaður eigi rétt á fullum styrk að fjárhæð 400.000 kr. þarf hann að hafa greitt að lágmarki 40.000 kr. í félagsgjöld síðustu tólf mánuði. Hálfur styrkur, að fjárhæð 200.000 kr., er veittur þeim félagsmönnum sem hafa greitt undir 40.000 kr. í félagsgjöld á sama tímabili.

Styrkir til stofnana, sveitarfélaga og sjálfseignastofnana
Starfsþróunarsjóður styrkir fræðslu- og þróunarverkefni hjá þeim aðilum og stofnunum sem að sjóðnum standa og fjármagnar þau verkefni sem sjóðsstjórn skipuleggur. Verkefni þurfa að falla að markmiðum í starfsþróunarmálum, standast almennar gæðakröfur eða vera gæðavottuð/viðurkennd og taka til starfsmanna sem félagsgjöld eru greidd fyrir til Starfsþróunarsjóðs
Sækja þarf um styrk í gegnum Mínar síður með rafrænum skilríkjum
Þegar umsókn hefur borist, þá birtist staðfestingartexti og umsóknin kemur fram á yfirliti umsókna á Mínum síðum. Hafi ekkert af þessu gerst, hefur umsókn ekki verið móttekin.
Rétt í sjóðinn öðlast félagsmaður þegar greiðslur félagsgjalda hafa staðið yfir í tólf mánuði samfellt. Félagsmaður þarf að vera í starfi þegar hann sækir um styrk og þegar nám / námskeið var greitt.
Hægt er að sækja um styrk allt að 12 mánuði aftur í tímann að því gefnu að reikningurinn sé ekki eldri en 12 mánuðir.
Já, það má.
Dæmi:
Ef sótt er um styrk fyrir ráðstefnuferð erlendis og ráðstefnugjald og flug eru greidd fyrirfram, en gisting ekki fyrr en komið er á hótelið, þá má senda fyrstu umsókn fyrir ráðstefnugjaldinu og flugkostnaðinum. Þegar gisting hefur verið greidd er hægt að senda inn aðra umsókn fyrir þann kostnað. Í seinni umsókninni nægir að taka fram að hún sé framhald af þeirri fyrri.
Ef sótt er um styrk vegna kostnaðar sem annar en umsækjandi sjálfur greiddi þarf að fylgja reikningur sem stílaður er á greiðanda. Auk þess þarf að fylgja með millifærslukvittun umsækjanda, fyrir hans hluta, til þess aðila sem greiddi heildarkostnað.
Slíkt tilhögun getur til dæmis átt við í ferðum erlendis, þar sem tveir deila herbergi. Það er hægt að sækja um styrk vegna eigin hlutar í þeim kostnaði að því gefnu að reikningar og millifærslukvittanir liggi fyrir.
Að jafnaði er greitt út einu sinni í viku.
Þegar styrkur hefur verið greiddur er send greiðslutilkynning í tölvupósti.
Félagsmaður sem fer í fæðingarorlof og velur að greiða félagsgjald af fæðingarorlofsgreiðslum viðheldur áunnum réttindum í sjóðnum yfir það tímabil sem greiðslur berast.
Félagsmaður viðheldur áunnum réttindum í sjóðnum á meðan greiddir eru sjúkradagpeningar frá Styrktarsjóðnum Klett. Umsækjandi sem hefur fullnýtt rétt sinn til sjúkradagpeninga nýtur áfram réttinda í sjóðnum í allt að eitt ár, stofni hann ekki til réttinda annarsstaðar. Með umsókn þarf að senda inn staðfestingu á að viðkomandi sé í veikindaleyfi, t.d. afrit af launaseðli og/eða afrit af greiddum sjúkradagpeningum.
Félagsmaður í launalausu leyfi á rétt á styrk samkvæmt reglum sjóðanna að öðrum skilyrðum uppfylltum. Með umsókn þarf að skila inn staðfestingu frá vinnuveitanda þess efnis að viðkomandi sé í launalausu leyfi.
Félagsmaður sem fær greiddan endurhæfingarlífeyri frá Tryggingastofnun heldur réttindum í allt að 12 mánuði. Með umsókn þarf að senda staðfestingu um að viðkomandi sé að fá endurhæfingarlífeyri frá Tryggingastofnun.
Aðild að fræðslusjóðunum fellur niður að sex mánuðum liðnum frá því síðast var greitt félagsgjald.

Starfsreglur Starfsþróunarsjóðs
Starfsþróunarsjóður Sjúkraliðafélags Íslands styrkir menntun, sí- og endurmenntun sjúkraliða og fræðslu- og þróunarverkefni á vinnustöðum, með það markmið að efla faglega starfsþróun sjúkraliða og styðja stofnanir við að þróa þjónustu í takt við kröfur samtímans samkvæmt kjarasamningum aðila.
-2000x1333.jpg&w=3840&q=75)
Stjórn Starfsþróunarsjóðs
Starfsþróunarsjóður er fjármagnaður með framlagi launagreiðanda í samræmi við ákvæði kjarasamninga. Stjórn sjóðsins er skipuð sex fulltrúum, þremur frá Sjúkraliðafélagi Íslands, tveimur frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og einum frá Reykjavíkurborg, þau eru:
Sandra B. Franks, formaður
Kristín Ólafsdóttir
Lára María Valgerðardóttir
Einar Mar Þórðarson
Ásta Einarsdóttir
Íris Jóhannsdóttir
Varamenn
Birna Ólafsdóttir
Hulda Birna Frímannsdóttir
Halldóra Friðjónsdóttir
Guðný Norðdalh Einarsdóttir