Beint í efni

Styrkir til stofnana, sveitarfélaga og sjálfseignarstofnana

Starfsþróunarsjóður

Starfsþróunarsjóður styrkir fræðslu- og þróunarverkefni hjá þeim aðilum og stofnunum sem að sjóðnum standa og fjármagnar þau verkefni sem sjóðsstjórn skipuleggur.  

Hér má nálgast umsóknareyðublað

Réttur til styrks.  

Verkefni þurfa að falla að markmiðum í starfsþróunarmálum, standast almennar gæðakröfur eða vera gæðavottuð/viðurkennd og taka til starfsmanna sem félagsgjöld eru greidd fyrir til Starfsþróunarsjóðs

Styrkhæfi verkefna 

Um er að ræða sérstaka starfsþróunarstyrki sem ætlaðir eru til að efla enn frekar starfsþróunarmöguleika félagsmanna og tengjast starfsþróunaráætlun umsækjanda 

Styrkthæft 

1. Sérhæfð námskeið  

a. Stjórnandi/sviðsstjóri getur sótt um styrk fyrir kostnaði vegna sérhæfðra námskeiða starfsmanna.  

b. Í umsókn stjórnanda/sviðsstjóra þarf að koma fram hver ávinningur námskeiðsins er fyrir starfsmann og vinnustaðinn.  

2. Fagráðstefna innanlands  

a. Stjórnandi/sviðsstjóri getur sótt um styrk fyrir kostnaði vegna fagráðstefna starfsmanna.  

b. Í umsókn stjórnanda/sviðsstjóra þarf að koma fram hver ávinningur námskeiðsins er fyrir starfsmann og vinnustaðinn.  

3. Fagráðstefna erlendis  

a. Stjórnandi/sviðsstjóri getur sótt um styrk fyrir kostnaði vegna sérhæfðra ráðstefna starfsmanna.  

b. Í umsókn stjórnanda/sviðsstjóra þarf að koma fram hver ávinningur námskeiðsins er fyrir starfsmann og vinnustaðinn.  

Ekki styrkhæft

A. Fæðiskostnaður.  

B. Ferðir innan borga/sveitarfélaga.  

C. Bensínkostnaður.  

D. Bílastæðagjöld. 

E. Bílaleigubíll.  

F. Launatap.  

G. Þess hluta fargjalda sem greiddur er með vildarpunktum eða annars konar viðskiptavild.