Beint í efni

Starfsþróunarsjóður

Umsókn um styrk úr Starfsþróunarsjóði

Upplýsingar um verkefnið

Tegund verkefnis*

Fylgigögn

Með umsókn þarf að fylgja ítarleg greinargerð þar sem fram kemur lýsing á verkefninu, kostnaðargreining ásamt nöfnum og kennitölum þáttakenda. Ath. aðeins er hægt að senda pdf skjöl með umsókn en hægt er að senda önnur skjöl á slfi@slfi.is ef ekki næst að umbreyta þeim í pdf.

Stjórn Starfsþróunarsjóðs áskilur sér rétt, skv. lögum um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, til að krefjast endurgreiðslu með vöxtum á styrk sem hefur verið varið til annarra verkefna en þeirra sem hann upphaflega var veittur til, og ef verkefni hefur ekki verið hrundið í framkvæmd innan 12 mánaða frá úthlutun.

Eftir afgreiðslu umsóknar eru styrkveitingum skipt þegar um háa styrki er að ræða, þannig að 70% styrks er greiddur út í byrjun og 30% þegar uppgjöri er skilað.

Nánari úthlutunarreglur

Stofnun/fyrirtæki

Tengiliður

Með umsókninni staðfestir stofnun að allra tilskilinna leyfa og/eða umboðs hafi verið aflað til að halda námskeið, og gengist undir þær skuldbindingar sem þarf til að halda námskeið (s.s. útgjöld og vinnutíma).

Stjórn sjóðsins áskilur sér rétt til að krefjast frekari gagna sem hún telur nauðsynleg við afgreiðslu umsókna. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá skrifstofu Sjúkraliðafélagsins.