Beint í efni

Trúnaðarmenn

Trúnaðarmaður er fulltrúi Sjúkraliðafélagsins á vinnustað. Hann er tengiliður milli samstarfsfólks, vinnuveitanda og félagsins. Trúnaðarmaður er kosinn af félagsmönnum á vinnustaðnum eða tilnefndur af félaginu þegar ekki er hægt að halda kosningu. Eftir kosningu þarf trúnaðarmaður að senda staðfestingu til skrifstofu félagsins. Hann nýtur verndar samkvæmt lögum, sem þýðir að honum má ekki segja upp fyrir að sinna trúnaðarstörfum sínum. Stjórn og starfsfólk félagsins styðja trúnaðarmenn í störfum þeirra og aðstoða við að leysa mál sem tengjast réttindum og aðstæðum félagsmanna. Trúnaðarmenn gegna lykilhlutverki í starfi félagsins. Þeir eru tengiliðir félagsmanna við félagið, stuðla að samstöðu og tryggja að réttindi sjúkraliða séu virt á vinnustöðum.

Trúnaðarmannaráð – þar sem samstaða verður að veruleika

Trúnaðarmenn eru lykillinn að sterkri stétt. Þeir tengja saman félagið og vinnustaðina, standa með sjúkraliðum þegar á reynir og tryggja að rödd þeirra heyrist. Sterkt trúnaðarstarf er besta tryggingin fyrir sanngjörnum kjörum, góðum starfsanda og virðingu fyrir störfum okkar.

Trúnaðarmenn

Samningar og lög um trúnaðarmenn

Trúnaðarmannaráð Sjúkraliðafélags Íslands er skipað framkvæmda- og félagsstjórn félagsins auk kjörinna félagsmanna sem kosnir hafa verið til trúnaðarstarfa fyrir félagið ásamt þeim félagsmönnum sem kosinn hefur verið til trúnaðarstarfa samkvæmt V. kafla laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna og samkomulagi Sjúkraliðafélags Íslands og fjármálaráðherra frá 8. desember 1992.

Samkomulag