Beint í efni

Fagið

Sjúkraliðafagið er burðarás í heilbrigðisþjónustu landsins, fag sem sameinar mannúð, fagþekkingu og teymisvinnu til að tryggja öryggi og lífsgæði fólks.

Sjúkraliðafagið

Sjúkraliðanám

Sjúkraliðanámið er hagnýtt og fjölbreytt sem sameinar bóklega og verklega kennslu. Námið veitir trausta fagþekkingu og færni til starfa í heilbrigðisþjónustu, þar sem umhyggja, ábyrgð og mannleg samskipti eru í forgrunni.

Námið hentar þeim sem hafa áhuga á að vinna með fólki, stuðla að heilsu, vellíðan og sjálfstæði annarra og vilja leggja sitt af mörkum til samfélagsins. Það tekur að jafnaði þrjú ár á framhaldsskólastigi (206 feiningar) og fer fram bæði í skólum og á heilbrigðisstofnunum.

Að loknu námi er sótt um starfsleyfi sem sjúkraliði hjá Embætti landlæknis.

Nánar
Sjúkraliðafagið

Sjúkraliðastarfið

Sjúkraliðastarfið er fjölbreytt og lifandi fag sem byggir á þekkingu, umhyggju og ábyrgð. Sjúkraliðar veita hjúkrun og umönnun á öllum stigum heilbrigðisþjónustunnar og gegna lykilhlutverki í að tryggja öryggi, vellíðan og lífsgæði fólks.

Þeir vinna í nánu samstarfi við hjúkrunarfræðinga og aðra heilbrigðisstéttir, þar sem teymisvinna og fagleg samstaða eru í forgrunni. Í starfi sjúkraliða felst mannúð, fagmennska og virðing fyrir mannlegri reisn, gildi sem mynda kjarnann í þessu mikilvæga starfi.

Nánar
Sjúkraliðafagið

Starfsþróun

Starfsþróun er mikilvægur þáttur í því að efla gæði heilbrigðisþjónustunnar og styrkja stöðu sjúkraliða í starfi. Með símenntun og endurmenntun viðhalda sjúkraliðar fagþekkingu, auka hæfni og laga starf sitt að breyttum þörfum og nýrri tækni í heilbrigðisþjónustu.

Sjúkraliðar geta sérhæft sig á ýmsum sviðum, til dæmis í öldrunarhjúkrun, heimahjúkrun, geðheilbrigði, endurhæfingu og heilsueflingu, líknar- og lífslokameðferð.

Viðbótarnám á háskólastigi, svo sem diplómanám fyrir starfandi sjúkraliða, eykur faglega ábyrgð og skapar tækifæri til framgangs í starfi.

Nánar