Þjónusta skrifstofunnar
Skrifstofan er bakland félagsmanna, staðurinn sem sjúkraliðar geta alltaf leitað til ef spurningar vakna. Við veitum ráðgjöf og aðstoð í kjaramálum, réttindum, menntun og starfsþróun.
Við vinnum að réttindamálum, samningum og samskiptum við vinnuveitendur, þar sem lögð er áhersla á að kjarasamningar séu virtir og réttindi sjúkraliða tryggð.
Við sjáum um námsmat og símenntun í samstarfi við menntastofnanir og vinnustaði, með það markmið að efla stöðu stéttarinnar og styðja við áframhaldandi starfsþróun.
Skrifstofan annast umsóknir í sjóði félagsins, rekstur og úthlutun orlofshúsa, útgáfumál og upplýsingamiðlun á heimasíðu, samfélagsmiðlum og í tímaritinu Sjúkraliðinn.

Starfsfólk skrifstofunnar


-2000x1333.jpg&w=3840&q=75)



