Beint í efni

Skipulag

Sjúkraliðafélag Íslands er með lýðræðislegt skipulag sem tryggir virk samskipti og sameiginlega ákvarðanatöku. Fulltrúaþing er æðsta vald félagsins og er haldið árlega. Þar eru reikningar og fjárhagsáætlun samþykkt, stefna félagsins mótuð og kosningar í trúnaðarstöður. Félagsstjórn skipa formenn svæðisdeilda ásamt framkvæmdastjórn. Hún fer með málefni félagsins milli fulltrúaþinga og kemur fram sem málsvari sjúkraliða. Framkvæmdastjórn samanstendur af formanni, varaformanni og tveimur fulltrúum. Hún sér um daglegan rekstur og framkvæmd ákvarðana félagsins.

Framkvæmdastjórn

Framkvæmdastjórn

Framkvæmdastjórn Sjúkraliðafélags Íslands ber ábyrgð á að framfylgja ákvörðunum fulltrúaþings og félagsstjórnar og tryggja að starfsemi félagsins sé í samræmi við stefnu og markmið þess. Hún sér jafnframt um daglegan rekstur félagsins í umboði félagsstjórnar og hefur eftirlit með fjárreiðum, rekstri og framkvæmd verkefna. Framkvæmdastjórnin fundar reglulega, að jafnaði á tveggja vikna fresti, þar sem tekin eru fyrir málefni félagsins, undirbúningur funda félagsstjórnar, fjárhagsmál og önnur verkefni sem lúta að starfsemi og hagsmunum félagsins.

Framkvæmdastjórn skal tryggja virkt upplýsingaflæði milli félagsstjórnar, svæðisdeilda og skrifstofu félagsins, og fylgja eftir samþykktum og stefnumörkun fulltrúaþings. Framkvæmdastjórn Sjúkraliðafélags Íslands er skipuð formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og tveimur varamönnum.

Fulltrúar framkvæmdastjórnar
Félagsstjórn

Félagsstjórn

Félagsstjórnin fer með málefni félagsins á milli fulltrúaþinga og hefur fjölbreytt og ábyrgðarmikil verkefni. Hún kemur fram sem málsvari félagsins út á við, mótar og fylgir eftir stefnu félagsins og vinnur að framgangi hagsmuna sjúkraliða.

Félagsstjórnin stýrir stefnumótandi verkefnum, skipuleggur innra starf og fræðslu, styður við menningar- og félagsstarf félagsmanna og tryggir virkt upplýsingaflæði milli svæðisdeilda og stjórna. Hún fylgist með rekstri og starfsemi félagsins og leggur áherslu á að efla samstöðu og faglega stöðu sjúkraliða um land allt.

Fulltrúar félagsstjórnar
Trúnaðarmenn

Trúnaðarmenn

Trúnaðarmaður er fulltrúi Sjúkraliðafélags Íslands á vinnustað. Hann er tengiliður milli samstarfsfólks, vinnuveitanda og félagsins. Trúnaðarmaður er kosinn af félagsmönnum á vinnustaðnum eða tilnefndur af félaginu þegar ekki er hægt að halda kosningu. Eftir kosningu þarf trúnaðarmaður að senda staðfestingu til skrifstofu félagsins. Hann nýtur verndar samkvæmt lögum, sem þýðir að honum má ekki segja upp fyrir að sinna trúnaðarstörfum sínum.

Stjórn og starfsmenn Sjúkraliðafélags Íslands styðja trúnaðarmenn í störfum þeirra og aðstoða við að leysa mál sem tengjast réttindum og aðstæðum félagsmanna. Trúnaðarmenn gegna lykilhlutverki í starfi félagsins. Þeir eru tengiliðir félagsmanna við félagið, stuðla að samstöðu og tryggja að réttindi sjúkraliða séu virt á vinnustöðum.

Nánar
Starfsnefndir

Starfsnefndir

Starfsnefndir eru mikilvægur hluti af starfsemi Sjúkraliðafélags Íslands. Þær vinna í umboði stjórnar að málefnum sem tengjast kjaramálum, menntun, siðfræði, lögum, útgáfu og orlofsmálum félagsmanna. Fulltrúar í nefndum eru kosnir á fulltrúaþingi félagsins til tveggja eða fjögurra ára, eftir því sem við á, og starfa á ábyrgð stjórnar félagsins.

Nánar
BSRB samstarf

BSRB samstarf

BSRB eru stærstu samtök opinberra starfsmanna á Íslandi. Öll stéttarfélög starfsmanna í almannaþjónustu hjá ríki, sveitarfélögum og á almennum vinnumarkaði geta orðið aðilar að BSRB. Bandalagið var stofnað 14. febrúar 1942 og í dag eru aðildarfélög BSRB 19 talsins og fjöldi félagsmanna um 25.000. Um tveir þriðju félagsmanna eru konur. BSRB hét áður Bandalag starfsmanna ríkis og bæja en nafninu var breytt í BSRB með breytingu á lögum þess árið 2015.

Nánar
Erlend samvinna

EPN - Evrópusamband sjúkraliða

The European Council of Practical Nurses (EPN) eru samtök evrópskra sjúkraliða sem stofnuð voru árið 1980. Meðlimir samtakanna eru félög sjúkraliða frá Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Íslandi, Færeyjum, Lúxemborg og Finnlandi. Markmið samtakanna vinna að því að efla faglega þróun sjúkraliða og stuðla að auknu samstarfi milli landa. EPN leggur áherslu á að deila þekkingu, reynslu og bestu starfsvenjum til að styrkja stöðu sjúkraliða og bæta gæði heilbrigðisþjónustu á alþjóðavísu.

Nánar