Starfsnefndir
Starfsnefndir eru lykilhluti af starfi Sjúkraliðafélags Íslands. Þær vinna í umboði og á ábyrgð stjórnar og sinna afmörkuðum verkefnum fyrir félagið og félagsmenn.
Fulltrúar eru kosnir á fulltrúaþingi til 2–4 ára (eftir nefndum). Á undanförnum misserum hafa nefndirnar unnið af miklum krafti að fjölbreyttum verkefnum sem tengjast kjörum, menntun, réttindum og faglegum framgangi sjúkraliða. Nefndirnar eru burðarás í innra starfi félagsins, vettvangur þar sem reynsla, fagþekking og framtíðarsýn félagsmanna koma saman.

Kjaramálanefnd
Kjaramálanefnd hefur á undanförnum misserum unnið markvisst að því að tryggja réttmæta launasetningu og viðurkenningu á menntun og ábyrgð sjúkraliða. Hún hefur komið að kjaraviðræðum við vinnuveitendur, sem eru ríkissjóður, Reykjavíkurborg, Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu og Samband Íslenskra sveitarfélaga.
Nefndin hefur unnið að því að finna sérhæfðum sjúkraliðum skýran sess innan stofnanasamninga, með skilgreindu starfsheiti samkvæmt reglugerð og laun í samræmi við aukna hæfni og sérþekkingu. Nefndin hefur sömuleiðis tekið þátt í endurskoðun á starfsmati og túlkun vaktahvata, og fylgst með framkvæmd kjarasamninga á vinnustöðum um allt land.
Með samstarfi við félagsstjórn og trúnaðarmenn vinnur nefndin að því að samræma túlkanir, bregðast við ábendingum félagsmanna og tryggja að kjarasamningar séu virtir í framkvæmd. Verkefni nefndarinnar endurspegla kjarnann í starfsemi félagsins, að standa vörð um réttindi sjúkraliða, jafnræði í launum og faglegan framgang innan heilbrigðiskerfisins.
Fulltrúar
- Sandra B. Franks
- Kristín Ólafsdóttir
- Hulda Birna Frímannsdóttir
- Kristín Helga Stefánsdóttir
- Nína Gunnarsdóttir
- Sif Sigmundsdóttir
- Hafdís Dögg Sveinbjarnardóttir
- Lára María Valgerðardóttir
- Helga Sigríður Sveinsdóttir
Kjörnefnd
Kjörnefnd hefur það mikilvæga hlutverk að tryggja lýðræðislega starfshætti og gagnsæi innan Sjúkraliðafélags Íslands. Hún hefur yfirumsjón með kosningum og atkvæðagreiðslum félagsins og sér til þess að ferli þeirra séu rétt framkvæmd, sanngjörn og í samræmi við lög og reglur félagsins.
Nefndin undirbýr og stýrir allsherjaratkvæðagreiðslum um kjarasamninga, verkfallsboðanir og formannskjör, og úrskurðar um úrslit, vafaatkvæði og önnur ágreiningsmál sem kunna að koma upp. Hún hefur jafnframt eftirlit með kjöri fulltrúa á fulltrúaþing og tryggir að kjörbréf og framboð séu í samræmi við ákvæði laga félagsins. Með störfum sínum stuðlar kjörnefnd að traustu innra starfi félagsins, jafnræði og virðingu fyrir lýðræðislegum ferlum.
- Kjörin til: 2 ára.
Fulltrúar
- Hulda Birna Frímannsdóttir
- Ásta Þorsteinsdóttir
- Nína Gunnarsdóttir
Varafulltrúi
- Jón Sverrir Jónsson
Uppstillingarnefnd
Uppstillingarnefnd gegnir lykilhlutverki í að tryggja lýðræðislega þátttöku og endurnýjun innan félagsins. Hún undirbýr tillögur um skipan í stjórn, nefndir og önnur trúnaðarstörf sem kosin eru á fulltrúaþingi, þar á meðal fulltrúa á þing og aðalfundi BSRB.
Í störfum sínum leggur nefndin áherslu á jafnvægi milli landshluta, kynja og reynslu, svo sem að nýir einstaklingar fái tækifæri til að taka þátt í starfi félagsins samhliða reyndum trúnaðarmönnum. Með þessu stuðlar hún að fjölbreyttu og öflugu félagi þar sem ólík sjónarmið og reynsla nýtast til ákvarðanatöku og stefnumótunar.
Uppstillingarnefnd vinnur nú að undirbúningi fyrir næsta fulltrúaþing árið 2026, þar sem lögð verður áhersla á að efla þátttöku félagsmanna og hvetja til framboða í nefndir og ráð félagsins.
- Kjörin til: 4 ára (samræmist kjörtíma formanns).
Fulltrúar
- Jakobína Rut Daníelsdóttir
- Hafdís Dögg Sveinbjarnardóttir
- Ásdís Þorsteinsdóttir
- Anna Spalevic
- Jóhanna Traustadóttir
Varafulltrúar
- Einar Rúnar Kristjánsson
- Nína Gunnarsdóttir
Orlofsheimila- og ferðanefnd
Orlofsheimila- og ferðanefnd vinnur að því að tryggja félagsmönnum jafnt og sanngjarnt aðgengi að orlofsúrræðum félagsins. Hún hefur haft yfirumsjón með uppbyggingu, viðhaldi og endurbótum orlofsheimila, auk þess að vinna að nýrri stefnu um framboð og dreifingu orlofsíbúða á landsvísu.
Nefndin hefur jafnframt farið yfir niðurstöður könnunar meðal félagsmanna um orlofsmál, sem gefur mikilvægar vísbendingar um þarfir og væntingar félagsmanna til framtíðarúrræða. Á grundvelli þessarar vinnu er nefndin að móta heildstæða stefnu í orlofsmálum félagsins, þar sem áhersla er lögð á fjölbreytt orlofstilboð, jafnt aðgengi og sjálfbæra nýtingu orlofseigna.
Verk nefndarinnar byggir á þeirri sýn að hvíld, endurnýjun og jafnræði í aðgengi séu órjúfanlegur hluti af heilbrigðu starfsumhverfi og velferð félagsmanna.
- Kjörin til: 2 ára.
Fulltrúar
- Ásta Bærings Svavarsdóttir
- Ólöf Adda Sveinsdóttir
- Jóhanna Traustadóttir
Varafulltrúi
- Guðrún Ragna Einarsdóttir
Fræðslunefnd
Fræðslunefnd hefur haft það að leiðarljósi að efla faglega menntun sjúkraliða og auka aðgengi að símenntun og starfsþróun. Nefndin hefur tekið virkan þátt í undirbúningi og kynningu á nýju diplómanámi sjúkraliða við Háskólann á Akureyri, sem styrkir faglegt sjálfstæði og framgang innan stéttarinnar og skapar ný tækifæri til sérhæfingar.
Einnig hefur nefndin unnið með skrifstofu félagsins að endurskoðun á reglum um styrki úr starfsþróunarsjóði, til að tryggja félagsmönnum sanngjarnt, gagnsætt og skilvirkt aðgengi að styrkjum til náms og þjálfunar.
Fræðslunefnd hefur jafnframt lagt áherslu á að efla símenntun sjúkraliða, bæði með því að styðja við styttri námskeið og sérhæfðar námsleiðir, og með því að móta framtíðarsýn um faglega þróun innan heilbrigðisþjónustunnar.
Með þessum verkefnum leggur nefndin grunn að stöðugum faglegum vexti sjúkraliða og tryggir að stéttin sé í takt við nýjar kröfur og breyttar áherslur í heilbrigðisþjónustu framtíðarinnar.
- Kjörin til: 2 ára.
Fulltrúar
- Hulda Birna Frímannsdóttir
- Lára María Valgerðardóttir
- Saga Ólafsdóttir
Varafulltrúi
- Hafdís Dögg Sveinbjarnardóttir
Laganefnd
Laganefnd hefur unnið að heildarendurskoðun á lögum félagsins með áherslu á skýrleika, gagnsæi og nútímalega stjórnsýslu. Hún hefur fylgst með þróun vinnuréttar og laga um heilbrigðisstarfsfólk til að tryggja að starfsemi félagsins og réttindi félagsmanna séu í samræmi við nýjar reglugerðir og lög.
Nefndin fjallar jafnframt um tillögur að lagabreytingum sem berast stjórn og gerir sjálf tillögur að umbótum í samræmi við þarfir og reynslu úr starfi félagsins. Allar lagabreytingar sem nefndin leggur til eru sendar þingfulltrúum minnst tveimur vikum fyrir boðað fulltrúaþing, svo tryggt sé að umræður byggist á vönduðum og vel undirbúnum tillögum.
- Kjörin til: 2 ára.
Fulltrúar
- Freydís Anna Ingvarsdóttir
- Erna Hauksdóttir
- Sigurlaug Ingimundardóttir
Varafulltrúi
- Erna Hauksdóttir
Siðanefnd
Siðanefnd hefur sinnt mikilvægu hlutverki í að efla fagmennsku, traust og virðingu innan stéttarinnar. Nefndin hefur unnið að endurskoðun siðareglna Sjúkraliðafélags Íslands, með það að markmiði að þær endurspegli nútímalega fagmennsku, ábyrgð og mannlega nálgun í starfi.
Einnig hefur nefndin unnið að uppfærslu á starfsreglum Siðanefndar, þar sem áhersla er lögð á vandað ferli við meðferð siðferðilegra mála, gagnsæi og jafnræði. Siðanefnd gegnir lykilhlutverki í að varðveita traust til stéttarinnar og tryggja að félagsmenn hafi skýran ramma um faglega hegðun og samskipti í starfi.
- Kjörin til: 2 ára. Ath.: fulltrúar stjórnar eru ekki kjörgengir í Siðanefnd.
Fulltrúar
- Rannveig Erlingsdóttir
- Sif Sigmundsdóttir
- Helga Rebekka Stígsdóttir
Varafulltrúi
- Katrín Kristjánsdóttir
Upplýsinga- og miðlunarnefnd
Upplýsinga- og miðlunarnefnd hefur það hlutverk að standa að útgáfu tímaritsins Sjúkraliðinn, sem er vettvangur fyrir faglega umræðu, fræðslu og reynslusögur úr starfi sjúkraliða um land allt, og miðla upplýsingum um félagið á samfélagsmiðlumNefndin hefur unnið að endurnýjuðum stíl og framsetningu tímaritsins með áherslu á nútímalegt efni, skýrleika og faglega umfjöllun sem endurspeglar fjölbreytni starfsins.
Markmið nefndarinnar er að gera Sjúkraliðann að lifandi og upplýsandi miðli, þar sem félagsmenn geta bæði miðlað þekkingu og fundið sig speglaða í umræðu um fagið, menntun, kjör og framtíðarsýn. Með þessu starfi styrkir efndin ímynd stéttarinnar og sýnir fram á þann kraft, þekkingu og mannlega nærveru sem einkennir sjúkraliða í starfi.
- Kjörin til: 3 ára.
Fulltrúar
- Saga Ólafsdóttir
- Helga Rebekka Stígsdóttir
- Kristrún Kristinsdóttir
Varafulltrúi
- Ásta Karen Jónsdóttir
Minningar- og styrktarsjóður
Minningar- og styrktarsjóður veitir styrki samkvæmt reglum sem samþykktar eru á fulltrúaþingi og tekur þátt í að styðja við félagsmenn í erfiðum aðstæðum.
- Kjörin til: Samkvæmt reglum sjóðsins (kosið á fulltrúaþingi).
Stjórn/nefnd
- Ásta Bærings Svavarsdóttir
- Lára María Valgerðardóttir
Varafulltrúi
- Sif Sigmundsdóttir
Sérstakar starfsnefndir
Samkvæmt 21. gr. laga SLFÍ getur félagsstjórn skipað tímabundnar starfsnefndir til að vinna að afmörkuðum verkefnum. Hver nefnd kýs sér formann og leggur niðurstöður fyrir félagsstjórn áður en þær eru kynntar á öðrum vettvangi.
Um skipan og kjörtímabil
- Kosningar í fastanefndir fara fram á fulltrúaþingi.
- Kjörtímabil er að jafnaði 2–4 ár (sjá við nefndir hér að ofan).
- Starfsnefndir starfa á ábyrgð stjórnar.
Hvernig get ég tekið þátt?
Þú getur tekið þátt í starfi félagsins með því að:
- bjóða þig fram til setu í nefndum á næsta fulltrúaþingi,
- leggja fram tillögu um málefni eða verkefni fyrir þingið,
- taka þátt í umræðu og stefnumótun félagsins í gegnum trúnaðarmenn eða svæðisdeildina þína.
Félagið hvetur alla félagsmenn til að taka virkan þátt í nefndarstarfi, því þannig mótum við framtíð stéttarinnar saman.