Einstaklingsstyrkir
Starfsþróunarsjóður
Réttur til styrks
Félagsmaður öðlast rétt í sjóðinn eftir að hafa greitt félagsgjöld samfellt í tólf mánuði. Til að sækja um styrk þarf félagsmaður að vera í starfi bæði þegar umsóknin er lögð fram og þegar námið eða námskeiðið var greitt. Aðild má ekki rofna í meira en sex mánuði.
Styrkupphæð
- Fullur styrkur
Styrkfjárhæð 400.000 kr. á hverjum 24 mánuðum, er veittur þeim sem greiddu 40.000 kr. í félagsgjöld sl.12 mánuði. Hver upphæð sem greidd er út endurnýjast 24 mánuðum síðar.
- Hálfur styrkur
Styrkfjárhæð 200.000 kr. á hverjum 24 mánuðum, er veittur þeim sem greiddu undir 40.000 kr. í félagsgjöld sl.12 mánuði. Hver upphæð sem greidd er út endurnýjast 24 mánuðum síðar.
Styrkhæft
- Nám á framhalds- og háskólastigi.
- Faglegt nám, námskeið og ráðstefnur sem tengjast starfsþróun á fagsviði viðkomandi eða heildstætt nám á nýju fagsviði (starfsferilsþróun).
- Tungumála-, upplýsingatækni- og starfslokanámskeið.
- Ferðakostnaður sem hlýst af lið 1 til 3.
- Félagsmaður skal leitast við að finna sem hagstæðust kjör á flugi og gistingu. Í ferðakostnaði er innifalið m.a. flug, lestarferðir milli borga og kostnaður vegna gistingar.
- Fastur ferðastyrkur vegna aksturs innanlands miðað við vegalengd frá lögheimili að náms- /ráðstefnustað eða millilandaflugvelli:
- 50 - 200 km, eru greiddar 7.200 kr.
- 200 - 400 km, eru greiddar 20.000 kr.
- 400 – 600 km, eru greiddar 30.000 kr.
- 600 – 800 km, eru greiddar 40.000 kr.
- 800 og meira, eru greiddar 50.000 kr.
Ekki styrkhæft
- Fæðiskostnaður.
- Samgöngur innanbæjar.
- Bílastæðagjald.
- Bensínkostnaður.
- Bílaleigubílar.
- Tómstundanámskeið.
- Göngu- og safnaferðir undir leiðsögn.
- Launatap.
- Þess hluta fargjalda sem greiddur er með vildarpunktum eða annars konar viðskiptavild.
- Námskeiða sem hafa það að markmiði að vinna með lífstíl og heilsu eða eru hluti af meðferðarúrræðum.
- Ráðstefna og námskeiða erlendis sem stofnun/ sveitarfélag/ sjálfseignarstofnun/ aðildarfélag hefur sótt um styrk fyrir.
Umsókn og fylgigögn
Til að hægt sé að afgreiða umsóknina og greiða út styrkinn þurfa eftirtalin gögn að berast með umsókn:
Skólagjöld/nám/námskeið:
- Gild greiðslukvittun fyrir námi/námskeiði sem staðfestir skráningu og að reikningur sé greiddur.
Fræðslu- og kynnisferð (innanlands og erlendis):
- Dagskrá ferðar staðfest af yfirmanni.
- Þátttakendalisti staðfestur af yfirmanni.
- Gildar greiðslukvittanir fyrir útlögðum kostnaði, t.d. fyrir heimsóknargjaldi, lestarferða á milli borga, flugi og gistingu.
Ráðstefna (innanlands og erlendis):
- Staðfest skráning á ráðstefnu.
- Gild greiðslukvittun fyrir ráðstefnu (ef við á).
- Gildar greiðslukvittanir fyrir útlögðum kostnaði, t.d. lestarferðir á milli borga, flugi og gistingu.
- ATH. sækja má um styrk vegna gistikostnaðar ef hann er greiddur eftir á. Þá þarf að vísa í fyrri umsókn vegna ráðstefnu.
Lotur í skóla:
- Gildar greiðslukvittanir vegna gistingar og/eða ferðakostnaðar.
- Gildar greiðslukvittanir vegna próftökugjalda og bókakaupa (skólabækur).