Starfsreglur Starfsþróunarsjóðs
Starfsþróunarsjóður Sjúkraliðafélags Íslands styrkir menntun, sí- og endurmenntun sjúkraliða og fræðslu- og þróunarverkefni á vinnustöðum, með það markmið að efla faglega starfsþróun sjúkraliða og styðja stofnanir við að þróa þjónustu í takt við kröfur samtímans samkvæmt kjarasamningum aðila.
1.gr. Sjóðurinn heitir Starfsþróunarsjóður Sjúkraliðafélags Íslands og er með heimili og varnarþing í Reykjavík. Sjóðurinn er starfræktur á grundvelli kjarasamninga fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborgar annars vegar og Sjúkraliðafélags Íslands hins vegar. Sjóðurinn starfar með því skipulagi og markmiði sem segir í þessum reglum.
2. gr. Tilgangur og markmið sjóðsins er annars vegar að efla starfsþróun sjúkraliða með það fyrir augum að þeir verði færari til að takast á við sífellt fjölbreyttari verkefni og hins vegar að auka möguleika stofnana á að þróa starfsvið sitt þannig að það samræmist þeim kröfum sem gerðar eru til stofnana á hverjum tíma.
Markmiði sínu hyggst sjóðurinn ná með því að styrkja sjúkraliða til frekari menntunar og starfsþróunar og stofnanir ríkisins og sveitarfélaga til framþróunar á sama grunni. Einnig styrkir sjóðurinn fræðslu og þróunarverkefni hjá þeim aðilum og stofnunum sem að sjóðnum standa og fjármagnar þau verkefni sem sjóðsstjórn skipuleggur. Um styrkúthlutanir fer eftir nánari reglum sem stjórn sjóðsins setur.
3. gr. Auk þeirra sem taldir eru upp í fyrstu grein þessara reglna geta sjálfseignastofnanir sem fjármagnaðar eru af ríkinu s.s. með daggjöldum sótt um aðild að sjóðnum. Enda greiði þær iðgjöld til sjóðsins á sama grunni og stofnanir ríkis og sveitarfélaga. Slíkar stofnanir hafa ekki rétt til stjórnarsetu.
4.gr. Rétt til að sækja um styrki til sjóðsins hafa hlutaðeigandi félagsmenn, stofnanir og samningsaðilar.
5. gr. Stjórn sjóðsins skal skipuð sex fulltrúum, þremur fulltrúum Sjúkraliðafélags Íslands, tveimur fulltrúum fjármála-og efnahagsráðuneytis og einum sameiginlegum fulltrúa frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg. Varamenn í stjórn skulu vera fjórir, tveir frá Sjúkraliðafélagi Íslands, einn frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu og einum sameiginlegum fulltrúa frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg. Stjórnin skiptir með sér verkum. Stjórnin skal halda gerðabók og rita í hana samþykktir sínar. Til þess að samþykkt sé lögmæt þarf meirihluti stjórnarmanna að vera henni fylgjandi. Firmaritun sjóðsins er í höndum allrar stjórnar sameiginlega en prókúruhafi umsýsluaðila fer með prókúru fyrir sjóðinn í samræmi við þjónustusamning og úthlutunarreglur sjóðsins. Stjórn ákveður starfshætti sína að öðru leyti. Reikningsár sjóðsins er almanaksárið. Reikningar skulu liggja fyrir í síðasta lagi í apríl ár hvert og skulu endurskoðaðir af löggiltum endurskoðendum sem stjórn sjóðsins fær til verksins. Ársskýrsla og reikningar sjóðsins skulu árlega kynnt hlutaðeigandi aðilum.
6. gr. Sjóðurinn er fjármagnaður með iðgjöldum sem launagreiðandi greiðir til sjóðsins vegna hlutaðeigandi starfsmanna samkvæmt ákvæðum í kjarasamningum hverju sinni. Sjóðurinn skal ávaxtaður á þann hátt sem sjóðsstjórn telur öruggast og hagkvæmasta á hverjum tíma. Stjórn sjóðsins er heimilt að semja við aðra aðila um að sjá um daglega umsýslu hans, þar á meðal bókhald.
7. gr. Reikningsár sjóðsins er almanaksárið. Reikningar skulu liggja fyrir í síðasta lagi í apríl ár hvert og skulu endurskoðaðir af löggildum endurskoðendum sem stjórn sjóðsins fær til verksins. Ársskýrsla og reikningar sjóðsins skulu árlega kynnt hlutaðeigandi aðilum.
8. gr. Um önnur ónefnd atriði vísast til kjarasamninga aðila sem í gildi er á hverjum tíma.
Breytingar á reglum þessum skulu hljóta samþykki kjarasamningsaðila.
Reykjavík 27. janúar 2021
Stjórn Starfsþróunarsjóðs Sjúkraliðafélags Íslands