Beint í efni

Styrkir Starfsmenntasjóðs

Félagsmaður öðlast rétt til styrks úr sjóðnum þegar greidd hafa verið félagsgjöld í sex mánuði samfellt.

Félagsmaður þarf að vera í starfi þegar sótt er um styrk og þegar nám eða námskeið var greitt. Aðild að félaginu má ekki hafa rofnað lengur en í sex mánuði.

Félagsmaður getur að hámarki fengið 200.000 kr. í styrk á hverju 24 mánaða tímabili. Hver styrkupphæð sem greidd er út endurnýjast 24 mánuðum eftir útgreiðslu.

Starfsmenntasjóður styrkir eftirfarandi:  

  • Nám á háskólastigi. 
  • Faglegt nám/námskeið. 
  • Ráðstefnur og málþing. 
  • Fræðslu- og kynnisferðir  
  • Fræðsludagskrá vegna faglegra fræðslu- og kynnisferða erlendis þarf að innihalda að lágmarki 6 klst. í fræðslu.  
  • Fræðsludagskrá vegna faglegra fræðslu- og kynnisferða innanlands þarf að innihalda að lágmarki 6 klst. í fræðslu. 
  • Nám/námskeið á sviði upplýsingatækni, tölvutækni og tungumála.  
  • Próftökugjald, fræðsluerindi, skólabækur, námskeið um starfslok.  
  • Ráðstefnur og málþing til að efla og styðja starfsemi trúnaðarmannaráðs. 
  • Akstursstyrkur vegna ferðakostnaðar innanlands þegar vegalengd frá heimili að náms- eða ráðstefnustað er: 
  • 50 - 200 km, eru greiddar 7.200 kr.  
  • 200 - 400 km, eru greiddar 20.000 kr.  
  • 400 – 600 km, eru greiddar 30.000 kr.  
  • 600 – 800 km, eru greiddar 40.000 kr.  
  • 800 og meira, eru greiddar 50.000 kr. 

Starfsmenntasjóður styrkir ekki eftirfarandi:

  • Fæðiskostnaður. 
  • Kostnaður vegna ferða innan borga eða sveitarfélaga. 
  • Launatap. 
  • Bílastæðagjald. 
  • Bílaleigubíll. 
  • Eldsneytiskostnaður. 
  • Kostnaður greiddur með vildarpunktum eða annars konar viðskiptavild.  
  • Niðurgreiðsla á gjafabréfum. 
  • Heilsustyrkir eða líkamsrækt. 

Umsóknarferlið  

Til að hægt sé að afgreiða umsókn og greiða út styrkinn þurfa eftirtalin gögn að berast með umsókn:  

Skólagjöld/nám/námskeið:  

  • Gild greiðslukvittun fyrir námi/námskeiði sem staðfestir skráningu og að reikningur sé greiddur.  

Fræðslu- og kynnisferð (innanlands og erlendis):  

  • Dagskrá ferðar staðfest af yfirmanni.  
  • Þátttakendalisti staðfestur af yfirmanni.  
  • Gildar greiðslukvittanir fyrir útlögðum kostnaði, t.d. fyrir heimsóknargjaldi, lestarferða á milli borga, flugi og gistingu.  

Ráðstefna (innanlands og erlendis):  

  • Staðfest skráning á ráðstefnu.  
  • Gild greiðslukvittun fyrir ráðstefnu (ef við á).  
  • Gildar greiðslukvittanir fyrir útlögðum kostnaði, t.d. lestarferðir á milli borga, flugi og gistingu.  
  • ATH. sækja má um styrk vegna gistikostnaðar ef hann er greiddur eftir á. Þá þarf að vísa í fyrri umsókn vegna ráðstefnu.  

Lotur í skóla:  

  • Gildar greiðslukvittanir vegna gistingar og/eða ferðakostnaðar.  
  • Gildar greiðslukvittanir vegna próftökugjalda og bókakaupa (skólabækur). 

Úthlutunarreglur Starfsmenntasjóðs