Beint í efni

Fagnám til diplómaprófs fyrir starfandi sjúkraliða

Háskólinn á Akureyri býður upp á fagnám til diplómaprófs fyrir starfandi sjúkraliða í öldrunar- og heimahjúkrun annars vegar og samfélagsgeðhjúkrun hins vegar. Þetta er 60 ECTS eininga fagnám fyrir starfandi sjúkraliða á grunnstigi háskólanáms til diplómaprófs á mismunandi kjörsviðum. Náminu er dreift á fjögur misseri eða tvö ár og er því gert ráð fyrir að samhliða náminu séu nemendur í sjúkraliðastöðum innan viðkomandi fagsviðs. Megin áherslur námsins eru að auka klíníska færni, styrkja fagmennsku sjúkraliða hvað varðar samskipti, fræðslu- og stjórnunarhæfni og víkka starfsmöguleika þeirra innan sem utan heilbrigðiskerfisins.