Reglur um námsmat
Námsmatinu er ætlað að tryggja að sjúkraliðar þekki skyldur sínar og virði siðareglur stéttarinnar, viðhaldi þekkingu sinni og faglegri færni og tileinki sér nýjungar er varða starfið. Þá er námsmatinu ætlað að vera hvatning fyrir sjúkraliða til að sækja sér nýrrar menntunar og viðhalda yfir starfsferilinn. Námsmatið skal einnig stuðla að frekari sérhæfingu í viðfangsefnum sjúkraliða í starfi s.s. í gæða- og umbótastarfi, nærhjúkrun, teymisvinnu og leiðsögn.
Matsreglur
Óski sjúkraliði eftir mati á námi skal hann leggja fram máli sínu til rökstuðnings prófgögn og vottorð um að hann hafi lokið námi með fullnægjandi hætti.
Stundafjöldi námskeiða til mats á símenntunarstundum eru að lágmarki 3 kennslustundir. Áfangar til stúdentsprófs til viðbótar við sjúkraliðapróf skulu metnir. Viðbótarnám til mats á símenntunarstundum þarf að lágmarki að vera 30 feiningar.
Viðbótareiningar á framhaldsskólastigi til mats á símenntunarstundum geta að hámarki verið 180 stundir. Háskólamenntun er metin ef hún nýtist sjúkraliðum í starfi. Lágmarkseiningafjöldi til mats eru 30 ECTS einingar og getur mat vegna þessa að hámarki verið 180 stundir. Litið er til hæfnikrafna starfa sem liggja til grundvallar starfsnámsbrautar sjúkraliðanáms við mat á símenntun sjúkraliða. Þá er einnig litið til lærdómsviðmiða fagháskólanáms fyrir starfandi sjúkraliða. Á grundvelli hæfnikrafna sjúkraliðanáms telur nám sem fellur undir eftirfarandi skilgreiningu til mats á símenntunarstunda sjúkraliða:
- Sérhæfð námskeið eða nám sem snýr að klínískri og almennri hjúkrun og umönnun
- Sérhæfð námskeið eða nám sem snýr að tækjabúnaði velferðartækni og vinnuvernd
- Námskeið eða nám sem snýr að gæðastjórnun, teymisstjórn, teymisvinnu, samstarfi og samskiptum
- Sérhæfð námskeið eða nám sem snýr að upplýsingatækni, upplýsingafræði og skráningu gagna, skjalavörslu, tölvunámskeið, kennslufræði, handleiðslu og samtalstækni
- Sérhæfð námskeið eða nám sem snýr að sjálfseflingu, siðfræði, persónuvernd og þjónustu
- Námskeið eða nám sem snýr að skipulagi og stjórnsýslu
Það sem ekki er metið, ekki tæmandi talning:
- Nám sem er á lægra hæfniþrepi en sjúkraliðabraut í hæfniramma um íslenska menntun
- Sjúkraliðanámið
- Skyndihjálp