Beint í efni

33. fulltrúaþing 2024

Á þinginu komu saman fulltrúar sjúkraliða víðs vegar að af landinu til að ræða stöðu stéttarinnar og þau mál sem helst brunnu á sjúkraliðum. Þar var sérstaklega fjallað um kjaramál, vaktavinnu, vaktahvata og mikilvægi þess að störf sjúkraliða séu metin í samræmi við ábyrgð, álag og fagmennsku stéttarinnar. Lögð var áhersla á að kjarabarátta sjúkraliða væri jafnframt jafnréttisbarátta, enda er stéttin fjölmenn kvennastétt á kynskiptum vinnumarkaði. Stjórnvöld þurfi að grípa til raunverulegra aðgerða til að leiðrétta kynbundinn launamun og tryggja að framlag sjúkraliða til heilbrigðisþjónustunnar sé metið að verðleikum.

Ályktun fulltrúaþingsins 2024

Sjá nánar

Aðgerðir strax!

Á 33. fulltrúaþingi var samþykkt ályktun þar sem stjórnvöld eru hvött til tafarlausra aðgerða gegn kynbundnum launamun, enda er kjarabarátta sjúkraliða jafnframt jafnréttisbarátta þar sem störf fjölmennrar kvennastéttar þurfa að vera metin að verðleikum.