Beint í efni

Ályktun fulltrúaþings 2024

Á 33. fulltrúaþingi Sjúkraliðafélags Íslands var samþykkt samhljóða ályktun þar sem skorað er á stjórnvöld að grípa þegar í stað til raunverulegra aðgerða gegn kynbundnum launamun. Í ályktuninni er lögð áhersla á að kjarabarátta sjúkraliða sé jafnframt jafnréttisbarátta, enda er stéttin fjölmenn kvennastétt á kynskiptum vinnumarkaði. Fulltrúar þingsins minna á að hið opinbera beri sérstaka ábyrgð á því að leiðrétta ómálefnalegt verðmætamat starfa og tryggja að ábyrgð, álag og framlag sjúkraliða sé metið að verðleikum.

Aðgerðir strax!

Fulltrúaþing Sjúkraliðafélags Íslands skorar á stjórnvöld að bregðast strax við kynbundnum launamun á íslenskum vinnumarkaði, sem hefur viðgengist hér í áratugi þrátt fyrir endalaus loforð um leiðréttingu á ómálefnalegum kynbundnum launamun.  

Kjarabarátta opinberra starfsmanna er einnig jafnréttisbarátta þar sem 70% opinberra starfsmanna eru konur.  Leiðrétting á kjörum sjúkraliða er fyrst og fremst jafnréttismál þar sem 97% þeirra eru konur. Hið opinbera gegnir lykilhlutverki í baráttunni gegn kynbundnum launamun, sem byggir að miklu leyti á verðmætamati starfa á kynskiptum vinnumarkaði.

Síðastliðið haust var haldinn fjölmennasti útifundur Íslandssögunnar þegar kvennaverkfallið stóð yfir. Stjórnvöld tóku þá undir kröfur fundarins um jafnrétti. Nú eru kjarasamningar opinberra starfsmanna lausir og gefst því einstakt tækifæri til að standa við fögur fyrirheit. Launamunur kynjanna er ekki aðeins tölfræðilegt viðfangsefni heldur er hann félags- og efnahagslegur veruleiki.

Launamisréttið hefur þannig neikvæð áhrif á lífsgæði og fjárhagslegt öryggi kvenna alla þeirra ævi. Við erum búin að heyra nógu lengi orð og fagurgala um aðgerðarhópa, átakshópa og nefndavinnu í jafnréttismálum, núna krefjumst við aðgerða.