Staðan, röddin og næstu skref
Það er sérstök tilfinning að koma aftur til starfa eftir frí og sjá að hlutirnir hafa ekki stöðvast eitt augnablik. Ég ákvað að gefa mér frí í tilefni 60 ára afmælis, og stíga aðeins til hliðar og safna kröftum. Það var bæði skynsamlegt og nauðsynlegt.

Þegar maður snýr svo aftur, blasir við einföld staðreynd, starfsemi sem byggir á góðu fólki heldur áfram, með eða án manns. Á meðan ég var frá stóð starfsfólk skrifstofunnar vaktina af festu og fagmennsku. Verkefnin héldu áfram að þróast, ákvarðanir voru teknar og ekkert féll á milli skips og bryggju. Það er ekki sjálfgefið. Það er afrakstur ábyrgðar og reynslu.
Þetta minnir líka á að enginn byggir upp stétt eða ber hana áfram einn. Það er alltaf teymi, alltaf samstaða og alltaf fólk sem stígur fram og tekur ábyrgð þegar á þarf að halda. Og þegar sú undirstaða er til staðar, þá er hægt að takast á við það sem bíður af fullum krafti.
Rödd sem byggir á staðreyndum
Það er einmitt það sem þessi vika hefur snúist um. Sjúkraliðar hafa enn á ný látið rödd sína heyrast. Ekki með tilviljunarkenndum hætti, heldur með skýrum rökum, gögnum og beinum samskiptum við þá sem bera ábyrgð á kerfinu.
Niðurstöður könnunar um líðan og starfsumhverfi sjúkraliða vega þungt. Þar birtist mynd sem við þekkjum, en höfum of lengi sætt okkur við. Álagið er ekki lengur tímabundið ástand. Það er orðið hluti af rekstrarlíkani kerfisins. Ábyrgðin er mikil, svigrúmið oft lítið og kröfurnar stöðugt að aukast. Þetta eru ekki lengur frásagnir af reynslu einstaklinga. Þetta eru staðreyndir studdar gögnum. Og staðreyndir kalla á viðbrögð.
Á sama tíma sjáum við að það skiptir máli þegar við tökum sjálf frumkvæði í að segja söguna. Heimasíða félagsins var tilnefnd til verðlauna fyrir efnis- og fréttaveitu ársins 2025 á Íslensku vefverðlaununum sem haldin var í Hörpu í gær. Sú tilnefning er ekki tilviljun. Hún er afleiðing markvissrar vinnu við að gera sjúkraliða sýnilega, setja málefni þeirra á dagskrá og byggja upp faglegt og öflugt upplýsingaflæði. Við höfum tekið ákvörðun um að bíða ekki lengur eftir því að aðrir skilgreini okkur. Við gerum það sjálf.
Næstu skref ráðast nú
En á meðan við byggjum upp röddina, þá þurfum við líka að verja grunninn. Herferð BSRB gegn fyrirhuguðu afnámi áminningarskyldu er skýrt dæmi um það. Þetta snýst ekki um smávægilegt lagaatriði. Þetta snýst um réttaröryggi starfsfólks. Þegar slík vernd veikis, þá breytist valdajafnvægið. Og reynslan sýnir að slíkar breytingar bitna alltaf harðast á þeim sem standa veikast fyrir.
Í vikunni höfum við einnig átt fundi með stjórnendum, meðal annars hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, þar sem við höfum rætt framtíð sjúkraliðastéttarinnar af fullri alvöru. Þar er ekki lengur verið að velta fyrir sér hvort þurfi að efla stéttina. Sú umræða er liðin. Nú snýst þetta um framkvæmd. Hvernig við tryggjum að menntun og sérþekking fái raunverulegt vægi. Hvernig við byggjum upp starfsumhverfi sem heldur fólki í starfi. Og hvernig við hættum að reka kerfi sem gengur út á að ganga sífellt lengra á þá sem halda því uppi.
Í vikunni áttum við einnig fund með stjórn EPN - European Practical Nurses. Þar kom skýrt fram að staðan sem við stöndum frammi fyrir hér á landi er ekki einsdæmi. Manneklan, álagið og skortur á viðurkenningu á hlutverki sjúkraliða er sameiginleg áskorun víða um Evrópu. Fram undan er ráðstefna samtakanna í Visby í Svíþjóð í byrjun júní. Þar munum við taka þátt í þeirri vinnu, miðla okkar reynslu og sækja þekkingu til baka.
Í dag höldum við svo áfram. Sjúkraliðafélagið fagnar 60 ára afmæli á árinu og af því tilefni höfum við ákveðið að fara út og hitta ykkur, hlusta og eiga samtal. Ég og hluti framkvæmdastjórnar heimsækjum svæðisdeildir félagsins og í dag er komið að Svæðisdeild Suðurnesja. Slíkir fundir skipta máli. Þar verður raunveruleg mynd til, ekki bara af stöðunni, heldur líka af því hvert við viljum fara. Því við mótum ekki framtíð stéttarinnar í lokuðum fundarherbergjum einum saman. Hún verður til í samtali, í reynslu og í rödd félagsmanna sjálfra.
Það sem stendur eftir er þetta: Heilbrigðiskerfið stendur og fellur með sjúkraliðum.
Góða helgi!


