Beint í efni

Þegar kerfið treystir á seiglu í stað lausna

Á síðustu dögum hefur komið skýrt í ljós hvernig heilbrigðiskerfið starfar. Það er rekið áfram af ábyrgð og seiglu starfsfólks, á sama tíma og álagið eykst og svigrúmið minnkar. Kerfið sjálft tekur hins vegar ekki næga ábyrgð á afleiðingunum.

6. febrúar 2026

Félagsstjórn Sjúkraliðafélags Íslands kom saman í gær og fór yfir stöðu og verkefni félagsins í heild. Þar var rætt um starf svæðisdeilda, undirbúning aðalfunda, skýrslu stjórnar og undribúning fyrir fulltrúaþing. Einnig var farið yfir stefnumótun félagsins og næstu skref í aðgerðaráætlun til ársins 2028, með áherslu á að tengja stefnur betur við framkvæmd.

Á fundinum var staða í kjaramálum og stofnanasamningum til umræðu, þar á meðal starfslýsingar, framgangur sjúkraliða og innleiðing á áfangasamkomulagi II. Einnig var farið yfir stöðuna á vinnumarkaði, kjarasamninga og verðbólgu, auk samskipta félagsins við stjórnvöld. Þetta eru lykilmál sem hafa bein áhrif á kjör, öryggi og framtíð sjúkraliða.

  • Félagsstjórnin fór yfir stefnumótun félagsins og næstu skref í aðgerðaráætlun til ársins 2028

Framkvæmdastjórn kom einnig saman í vikunni þar sem farið var yfir verkefnastöðu, hagnýt atriði í daglegum rekstri og næstu skref í málum sem eru í vinnslu. Þarna birtist skýrt hversu víðfeðmt starf félagsins er. Það er eitt að móta stefnu, annað að fylgja henni eftir í framkvæmd. Hvorugt gengur án hins.

Í vikunni kom út nýtt námsefni sem Sjúkraliðafélagið hefur styrkt, Aðgát – námsorðaforði með áherslu á hjúkrun, sem tengir íslenskukennslu beint við raunveruleg störf í heilbrigðisþjónustu. Hún er ætluð fólki af erlendum uppruna sem er í sjúkraliðanámi eða starfi og styður það í að tileinka sér faglegt tungumál í daglegu starfi. Slík verkfæri skipta miklu máli fyrir gæði þjónustunnar, öryggi í starfi og farsæla aðlögun til framtíðar.

  • Aðgát – námsorðaforði hentar vel sjúkraliðanemum á íslensku B1–B2 stigi

Í vikunni var sett í gang ný könnun um líðan sjúkraliða í gegnum „Mínar síður“. En því miður hefur kerfið legið niðri síðustu daga, en unnið hefur verið að lagfæringum. Könnun verður því opin lengur en upphaflega var áætlað og hvet ég alla starfandi sjúkraliða að taka þátt, því niðurstöðurnar skipta miklu máli þegar rætt er við stjórnendur og stjórnvöld um álag, aðstæður og framtíð þjónustunnar.

Síðustu dagar hafa einnig einkennst af alvarlegum málum. Staða bráðamóttökunnar hefur verið í umræðinni í ljósi þess að átta starfsmenn greindust með berklasmit í desember. Þegar ekki er hægt að tryggja öryggi starfsfólks á vinnustað er ljóst að botninum er náð. Þá hefur staða sjúkraliða innan heimahjúkrunar einnig verið í umræðunni hjá okkur. En þar hefur álag aukist mikið á undanförnum árum.

  • Nína Gunnarsdóttir og Hugrún Davíðsdóttir, heimahjúkrun Efri byggð

Fjöldinn sem þiggur heimahjúkrun eykst á milli ára og þar af leiðandi eykst fjöldi vitjana hjá sjúkraliðum. Vegna skorts á hjúkrunarheimilum búa veikir eldri borgararnir okkar nú lengur heima og verkefnin verða sífellt fjölþættari og flóknari. Skipulag og mönnun heimahjúkrunar hefur ekki haldist í hendur við þessa þróun og því er nauðsynlegt að bregðast við og styrkja heimahjúkrun.

Góða helgi.