Beint í efni

Færnin sem kerfið þarf að viðurkenna

Þekking verður ekki aðeins til á skólabekk. Hún mótast einnig í starfi, í daglegum verkefnum, með ábyrgð, reynslu og faglegri þátttöku á vinnumarkaði. Raunfærnimat er mikilvæg leið til að viðurkenna þessa hæfni og skapa einstaklingum tækifæri til að fá þekkingu sína, færni og reynslu metna inn í formlegt nám á framhaldsskólastigi.

24. apríl 2026

Samkvæmt lögum skal einstaklingum sem búa yfir faglegri kunnáttu og reynslu úr atvinnulífinu gefinn kostur á slíku mati. Raunfærnimat fer fram hjá viðurkenndum fræðsluaðilum sem starfa á grundvelli laga um framhaldsfræðslu nr. 27/2010 og laga um framhaldsskóla nr. 92/2008.

Símenntunarstöðin Framvegis er ein þeirra símenntunarstöðva landsins sem sinna raunfærnimati og hefur hlotið vottun mennta- og barnamálaráðuneytisins fyrir þá starfsemi. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur gegnt mikilvægu hlutverki í þróun og utanumhaldi raunfærnimats á Íslandi. Sjúkraliðafélag hefur um árabil átt í góðu samstarfi við alla haghafa um þessi mál.

Á síðustu árum hafa orðið breytingar á fyrirkomulagi raunfærnimats með hliðsjón af ábendingum og sjónarmiðum þeirra sem koma að því að móta og nota þessa leið til menntunar. Ólík sjónarmið hafa ítrekað komið fram um ágæti þessarar námleiðar, sem er hefur reynst vel þegar rýna á málin til gagns. Hér eftir sem hingað til tekur Sjúkraliðafélagið virkan þátt í þróun og umbótum á fyrirkomulaginu til að tryggja gæði, traust og fagmennsku í menntun sjúkraliða.

Raunfærnimat er ekki afsláttur af kröfum náms eða starfsréttinda. Það er faglegt matsferli á því hvort einstaklingur hafi þegar tileinkað sér þá hæfni sem annars væri aflað með formlegu námi. Þátttaka í raunfærnimati tryggir því ekki að hæfni verði metin til eininga. Ef viðkomandi uppfyllir ekki tilskildar kröfur leiðir matið ekki til viðurkenningar. Þá er skólameisturum framhaldsskóla heimilt að haga mati eininga sem ekki er aflað í viðkomandi menntastofnun eftir eigin reglum.