Beint í efni

Gleðilega páska

Á meðan margir staldra við og njóta samveru um páskana, standa sjúkraliðar vaktina, af alúð, ábyrgð og umhyggju. Þið eruð burðarstoð í heilbrigðiskerfinu og framlag ykkar skiptir ómetanlegu máli, alla daga ársins. Við þökkum fyrir ykkar mikilvæga starf og óskum ykkur gleðilegra páska. - Skrifstofa félagsins verður lokuð á skírdegi og öðrum degi páska.

27. mars 2026

Álagsgreiðslur um páskana - frá 2. apríl til 6. apríl.
2. apríl – skírdagur, 3. apríl - laugardagur fyrir páska og 5. apríl - annar í páskum eru allt sérstakir frídagur og þá daga greiðist 75% álag.

Stórhátíðardagana föstudaginn langa og páskadag er greitt 120% álag.

Aukavaktargreiðslur á stórhátíðum:

Á stofnunum og vinnustöðum með starfsemi sem er skipulögð allan sólarhringinn hefur reynst erfitt að fá starfsfólk til þess að taka að sér aukavaktir á hátíðardögum þegar greitt er 120% álag. Helsta ástæðan er að stórhátíðarkaup er lægra en stórhátíðarálag auk þess sem vægi vinnuskyldustunda og vaktahvati reiknast ekki á aukavaktir.
Þessu má bregðast við með því að gera breytingu á vakt hjá þeim sem tekur að sér aukavakt á stórhátíðardögum. Þá fær viðkomandi starfsmaður breytingagjald vegna skamms fyrirvara, hún telst upp í vinnuskyldu að teknu tilliti til vægi vinnuskyldustunda, greiðist á stórhátíðarálagi og telst upp í vaktahvata.