Samstaða, ábyrgð og verkin framundan
Í dag er 1. maí, baráttudagur verkalýðsins. Það er enginn venjulegur dagur. Þetta er dagurinn þegar við stöldrum við, lítum yfir farinn veg og minnum okkur á að réttindi launafólks féllu ekki af himnum ofan. Þau voru ekki gjöf frá góðviljuðum yfirvöldum. Þau urðu til vegna baráttu, vegna samstöðu, vegna fólks sem neitaði að sætta sig við ranglæti og þögn.

Og þau réttindi standa ekki óhögguð nema við stöndum vörð um þau. Á hverjum degi. Með skýrri rödd, festu og samstöðu.
Fyrir sjúkraliða er 1. maí ekki aðeins hátíðlegur dagur í sögu verkalýðshreyfingarinnar. Hann er líka spegill á okkar eigið starf. Ábyrgðina sem við berum. Þekkinguna sem við búum yfir. Reynsluna sem hefur mótast í vinnunni, inni á heimilum, við sjúkrarúm og í þjónustu við fólk sem þarf á umhyggju, hjúkrun, nærveru og öryggi að halda.
Sjúkraliðar eru þar sem lífið er viðkvæmt. Þeir eru á vaktinni þegar aðrir sofa. Þeir halda kerfinu gangandi þegar álagið þyngist. Þeir mæta fólki af fagmennsku, hlýju og ábyrgð, um land allt og allan sólarhringinn. Það er starf sem á að vera metið að verðleikum,ekki aðeins í fallegum orðum á hátíðisdögum, heldur í kjörum, virðingu, tækifærum og raunverulegri viðurkenningu.
Í dag býður Sjúkraliðafélagið sjúkraliðum og fjölskyldum þeirra til samveru í félagsaðstöðunni við Grensásveg kl. 11.30 Þar verður fjölskylduvæn dagskrá áður en við tökum þátt í hátíðarhöldum og kröfugöngu dagsins, sem hefst á Skólavörðuholti kl. 13.00 og kröfugangan byrjar kl. 13.30.
Það er mikilvægt að koma saman á degi sem þessum til að minna okkur á að samstaðan er ekki gamaldags orð úr ræðustólum fortíðarinnar. Hún er lifandi afl sem heldur okkur uppréttum þegar á móti blæs. Hún er það sem gerir okkur kleift að sækja fram.
Við höldum áfram að byggja upp sterkt félag. Við höldum áfram að tala skýrt fyrir sjúkraliðum og krefjast þess að störf okkar séu metin að verðleikum. Og við höldum áfram að minna á að heilbrigðiskerfi verður ekki byggt á slagorðum einum saman. Það verður byggt á fólki, fagmennsku, öryggi og virðingu. Sjúkraliðar eru hluti af burðarvirki heilbrigðiskerfisins. Það á að sjást og heyrast.
Gleðilegan 1. maí, kæru sjúkraliðar.