Beint í efni

Reglur fyrir Vinnudeilu- og verkfallssjóð Sjúkraliðafélags Íslands

  1. 1. gr.: Heiti sjóðsins og varnarþing

    Sjóðurinn heitir Vinnudeilu- og verkfallssjóður Sjúkraliðafélags Íslands. Lögheimili hans og varnarþing er í Reykjavík.

  2. 2. gr.: Tilgangur

    Tilgangur sjóðsins er að aðstoða félagsmenn ef til vinnudeilu eða verkfalls kemur, eftir því sem ástæða þykir til, þó ekki til að standa undir venjulegum kostnaði af gerð kjarasamninga.

  3. 3. gr.: Stjórn

    Stjórn sjóðsins skipar framkvæmdastjórn Sjúkraliðafélags Íslands.

  4. 4. gr.: Styrkir til annarra félaga

    Stjórn sjóðsins er heimilt að veita öðrum stéttarfélögum sem eiga í kjaradeilum fjárhagsaðstoð.

  5. 5. gr.: Reikningar

    Stjórn sjóðsins fer með framkvæmdavald í málefnum hans milli fulltrúaþinga og gerir því grein fyrir störfum sínum. Sjóðurinn skal vera sjálfstæður og ávaxtaður sérstaklega og hafa sjálfstætt bókhald.

    Kjósa skal tvo skoðunarmenn til að yfirfara reikninga hans. Reikningar sjóðsins skulu lagðir fyrir fulltrúaþing félagsins, samhliða reikningum þess.

  6. 6. gr.: Úthlutunarreglur

    Stjórn sjóðsins skal í upphafi úthlutunar hverju sinni, setja meginreglur um greiðslur og skulu þær bókaðar í fundargerðarbók. Halda skal sérstaka gerðabók yfir styrkbeiðnir og styrkveitingar og/eða lán úr sjóðnum. Stjórninni er heimilt hvort heldur að veita félagsmönnum sem eiga í verkfalli, styrk eða lána til framfærslu, á kjörum sem hún ákveður.

  7. 7. gr.: Tekjur

    Fulltrúaþing Sjúkraliðafélags Íslands ákveður fastar tekjur sjóðsins hverju sinni. Tekjur hans skulu miðast við hlutfalls af félagsgjöldum, er innheimtast til félagsins.

  8. 8. gr.: Lántökuheimild

    Stjórn félagsins er heimilt ef þörf krefur, að taka að láni f.h. Vinnudeilu og verkfallssjóðs upphæð sem svara til allt að tveggja ára föstum tekjum sjóðsins.

  9. 9. gr.: Ávöxtun

    Stofnfé sjóðsins skal vera sérstakt framlag og endurgreiðslur á lánum sem veitt voru félagsmönnum sem áttu í verkfalli í lok ársins 1994. Sjóðurinn skal ávaxtaður á tryggan hátt og leitast við að koma í veg fyrir afföll hans. Stjórn Sjúkraliðafélags Íslands er heimilt að nota sjóðinn vegna tímabundinna fjárfestingar við kaup eða byggingu fasteigna vegna félagsstarfsemi eða orlofsmála. Vextir sjóðsins skulu þá reiknast þeir sömu og venjulegir útlánsvextir í banka á hverjum tíma. Þess skal gætt að a.m.k. 2/3 hlutar sjóðsins séu ávalt lausir til ráðstöfunar.

  10. 10. gr.: Ráðstöfun eigna

    Verði Vinnudeilu- og verkfallssjóður félagsins lagður niður, ráðstafar fulltrúaþing Sjúkraliðafélags Íslands eignum hans.

  11. 11. gr.: Breytingar á reglum

    Reglum má aðeins breyta á fulltrúaþingi. Tillögur til breytinga á þessum reglum skulu hafa borist stjórn Sjúkraliðafélags Íslands eigi síðar en sex vikum fyrir fulltrúaþing. Breytingar á reglunum öðlast ekki gildi fyrr en þær hafa hlotið staðfestingu fulltrúaþings Sjúkraliðafélags Íslands, að fenginni umsögn laganefndar félagsins

    Reglur Vinnudeilu og verkfallssjóðs lagðar fram til samþykktar á fulltrúaþingi
    Fulltrúaþingi 13. maí 1995 samþykktar og þannig settar.
    Fulltrúaþing 18. maí 2021 og samþykktar þannig breyttar.