Frá framtíðarsýn til verka – á réttri leið inn í sumarið
Nú er sumarið komið. Sumardagurinn fyrsti var í gær og með honum fylgir ákveðin tilfinning, - léttleiki, ný byrjun og vilji til að horfa fram á veginn. Það á vel við núna. Undanfarin ár hefur Sjúkraliðafélag Íslands unnið markvisst að því að móta skýra framtíðarsýn fyrir félagið, stéttina og þau verkefni sem við stöndum frammi fyrir.

Sú vinna hefur verið unnin í áföngum, með virkri þátttöku félagsmanna, trúnaðarmanna, starfsnefnda, svæðisdeilda og félagsstjórnar. Hún byggir á reynslu þeirra sem þekkja starfið best, þeirra sem standa vaktina á hverjum degi.
Í þessari vinnu urðu til fjórar stoðir sem hafa síðan mótað okkar stefnu, þ.e: ásýnd, rétt þjónusta á réttum stað, fólkið í forgrunni og fagsýn og fagvitund. Þessar stoðir ramma inn starf félagsins og hjálpar okkur að halda fókus á verkefnum sem skipta máli. Og þessa vikuna hefur undirbúningur fyrir fulltrúaþing félagsins verið í fullum gangi. Það er alltaf ákveðin spenna sem fylgir því að fara yfir uppgjör ársins, bæði í starfi og rekstri. Þar gefst tækifæri til að staldra við og meta stöðuna af yfirvegun. Og niðurstaðan er skýr. Við erum á réttri leið.
Það er bæði ánægjulegt og hvetjandi að sjá hvernig þessi stefnumótunarvinna hefur skilað sér inn í starfsemi félagsins. Ákvarðanir sem teknar verða á fulltrúaþinginu byggja á þessari vegferð enda sprottnar úr markvissri vinnu, samtali og sameiginlegri sýn sjúkraliða.
Árangurinn er ekki aðeins sýnilegur í einstökum verkefnum eða málum. Hann birtist í heildarmyndinni. Ásýnd félagsins er skýrari. Umræða um rétt hlutverk sjúkraliða og rétta þjónustu á réttum stað hefur styrkst. Fólkið er í forgrunni í okkar nálgun. Og fagsýn og fagvitund eru orðin sýnilegri í okkar málflutningi og verkefnum.
Á sama tíma höfum við lagt ríka áherslu á að styrkja rekstrarlega umgjörð félagsins, bæta yfirsýn og efla gagnsæi. Það er grundvallaratriði að félagsmenn geti treyst því að fjármunir félagsins séu nýttir af ábyrgð, með skýru verklagi, faglegu eftirliti og vönduðum stjórnarháttum. Sú uppbygging sem hefur átt sér stað á skrifstofu félagsins, með skýrari verkferlum, aukinni sérþekkingu og bættri umgjörð um rekstur og umsýslu, er hluti af þessari vegferð. Hún styður við þá stefnu sem við höfum sett og gerir okkur betur í stakk búin til að sinna verkefnum félagsins til lengri tíma.
Þegar við horfum fram á veginn blasa við spennandi tímar. Í vikunni sóttum við fund þar sem rætt var um gervigreind, þróun á vinnumarkaði og hvernig ný tækni gæti í framtíðinni stutt við heilbrigðis- og öldrunarþjónustu. Við þurfum að fylgjast vel með þessari þróun og taka þátt í henni á okkar forsendum. Tæknin getur stutt við betri verkferla, aukið yfirsýn og létt undir í daglegu starfi. En hún kemur ekki í stað mannlegrar nærveru, umhyggju, faglegs mats, hjúkrun og ábyrgðar. Þess vegna verður ein stærsta áskorun næstu ára áfram sú sama, að mennta fólk til að sinna fólki. Það er líka hluti af okkar framtíðarsýn að hafa puttann á púlsinum, horfa fram á veginn og tryggja að ný tækni nýtist til að styrkja fagið.
Þetta er afmælisár félagsins. Á sama tíma og við fögnum 60 ára sögu félagsins erum við að leggja grunn að næsta kafla í sögu stéttarinnar. Verkefnin framundan eru skýr. Við ætlum að halda áfram að styrkja stöðu sjúkraliða, tryggja að menntun, hæfni, ábyrgð og reynsla fái raunverulega viðurkenningu og byggja upp enn öflugra félag til framtíðar.

Kjaramálin eru þar í lykilhlutverki. Baráttan fyrir bættum kjörum sjúkraliða snýst ekki aðeins um laun, heldur einnig um virðingu fyrir störfum okkar, faglegri ábyrgð og því mikilvæga framlagi sem sjúkraliðar leggja til heilbrigðis- og velferðarþjónustu á hverjum degi. Nú um þessar mundir erum við loks að ná mikilvægum áfanga í kjaramálum sjúkraliða sem starfa hjá Reykjavíkurborg og sveitarfélögum.
Áfangasamkomulag II er á lokametrunum og markar mikilvægt skref í að efla stöðu sjúkraliða, bæta kjör og tryggja að störf okkar séu metin að verðleikum. Þetta er árangur sem byggir á þrautseigju, samstöðu og skýrri sýn á það sem framundan er.
Sjúkraliðafélagið er bæði fagfélag og stéttarfélag. Það byggir á samstöðu, krafti og vilja til að hafa áhrif og móta framtíðina. Við erum komin vel á veg og við höldum áfram.
Ég vil að lokum óska ykkur öllum gleðilegs sumars. Megi það færa ykkur hvíld, orku og góðar stundir, og gefa okkur öllum kraft til að halda áfram þessari mikilvægu vegferð.
Góða helgi.



