Beint í efni

Sjúkraliðar eiga að sjást í kerfinu

Það er stundum sagt að kerfið hreyfist hægt. Það er ekki alveg rétt. Stundum hreyfist það alls ekki, fyrr en nógu margir ýta nógu lengi, nógu ákveðið og með nógu mikla þolinmæði. Þá heyrist loksins eitthvert brak og hlutirnir fara að mjaka sér áfram. Í þessari viku urðum við vör við slíka hreyfingu.

29. maí 2026

Starfsmat sjúkraliða hjá sveitarfélögum

Við funduðum með framkvæmdanefnd starfsmats og þar var loksins gengið frá pörun sex starfslýsinga sjúkraliða hjá sveitarfélögum. Þetta er mikilvægur áfangi í þeirri vinnu sem leiðir af kjarasamningi Sjúkraliðafélags Íslands við Samband íslenskra sveitarfélaga, þar sem samið var um að taka upp starfsmat á samningstímanum. Það má vel vera að orðin „pörun starfslýsinga“ kveiki ekki byltingarbál í brjósti almennings. En fyrir sjúkraliða skiptir þetta máli. Starfsmat er ekki töfralausn. En rétt notað getur það verið mikilvægt tæki til að draga fram virði starfa sem alltof lengi hafa verið vanmetin. Það er ekkert náttúrulögmál að störf okkar sem unnin eru af mikilli alúð, ábyrgð og fagmennsku séu metin of lágt. Það er mannanna verk. Og það sem menn hafa smíðað, geta menn líka lagað.

Ekki bara á vaktinni, líka við borðið

Við heimsóttum einnig Embætti landlæknis þar sem við ræddum nokkur mikilvæg mál fyrir stéttina. Þar var efst á baugi aðgangur sjúkraliða að sjúkraskrárkerfum, með áherslu á öryggi sjúklinga, faglega ábyrgð og samræmda framkvæmd innan heilbrigðisþjónustunnar. Við ræddum jafnframt lögverndun starfsheitis sjúkraliða og stöðu stéttarinnar í heilbrigðiskerfinu. Lögverndun starfsheitisins þarf að endurspeglast í framkvæmd, virðingu, ábyrgð og í því hvernig kerfið talar um stéttina og nýtir þekkingu hennar. Þess vegna bönkum við á allar dyr og minnum á það sem ætti í raun að liggja í augum uppi, að það gengur ekki að kalla eftir sjúkraliðum þegar vantar fólk á vakt, en gleyma þeim þegar verið er að móta kerfið, skilgreina ábyrgðina og taka ákvarðanir um framtíð heilbrigðisþjónustunnar og fjölgun hjúkrunarrýma.

Réttaröryggi er ekki gamaldags munaður

Þá áttum við fund í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis þar sem við fylgdum eftir umsögn félagsins um frumvarp sem felur í sér afnám áminningarskyldu samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Afstaða félagsins er skýr. Sjúkraliðafélag Íslands leggst gegn því að áminningarskyldan verði felld brott.

Áminningarskyldan er ekki einhver gamall pappírsdreki úr fortíðinni sem hægt er að henda út um gluggann í nafni nútímalegrar mannauðsstjórnunar. Hún er ein af grunnstoðum réttaröryggis opinberra starfsmanna. Hún tryggir að uppsögn sé ekki fyrsta úrræði heldur síðasta skref, þegar málefnalegt ferli hefur farið fram, starfsmaður hefur fengið að vita hvað þarf að bæta og raunhæft tækifæri til að bregðast við. Það heitir meðalhóf og sanngirni. Og í góðu stjórnkerfi ætti það ekki að teljast byltingarkennd hugmynd.

Tímamótaverkefni um virði starfa

Þá er tímamótaverkefni að fara af stað hjá ríkinu um þróun nýs virðismatskerfis starfa. Þetta er ekki eitthvað sem datt af himnum ofan í síðustu viku. Að baki liggur margra ára vinna, skýrslur, starfshópar og þrálát barátta fyrir því að störf sem hafa lengi verið vanmetin, ekki síst hefðbundin kvennastörf, verði metin út frá raunverulegu virði, ábyrgð og álagi. Sjúkraliðar eru í hópi þeirra fyrstu sem fara af stað í þessu verkefni. Það skiptir máli. Það er viðurkenning á því að störf sjúkraliða þurfa að vera hluti af þessari stóru kerfisbreytingu frá upphafi.

Á næstu dögum mun starfsfólk í völdum starfsheitum sjúkraliða fá senda spurningakönnun vegna verkefnisins. Ég hvet alla sem fá spurningalista til að taka þátt. Þetta er tækifæri til að láta rödd sjúkraliða heyrast, draga fram raunverulegt innihald starfsins og leggja okkar af mörkum við mótun kerfis sem getur haft verulega þýðingu fyrir framtíð launamyndunar hjá opinberu starfsfólki. Það er enginn sem þekkir störf sjúkraliða betur en sjúkraliðar sjálfir. Sú þekking býr í vöktunum, samskiptunum, ábyrgðinni, fagmennskunni og í þeirri reynslu sem verður til þegar fólk sinnir starfi sínu dag eftir dag, oft við krefjandi aðstæður og undir miklu álagi.

Við höldum áfram að ýta við kerfinu

Þegar allt er lagt saman má segja að þessi vika hafi snúist um eitt stórt verkefni í mörgum myndum. Að störf sjúkraliða séu sýnileg, rétt metin og virt. Það á við í starfsmati sveitarfélaga og virðismatskerfi ríkisins. Það á við um aðgang að sjúkraskrárkerfum og lögverndun starfsheitisins. Og það á líka við þegar við stöndum vörð um réttaröryggi sjúkraliða. Við höldum áfram að ýta við kerfinu. Og alltaf með sama markmið að leiðarljósi, - að sjúkraliðar njóti þeirrar virðingar, stöðu og réttinda sem ábyrgð þeirra og framlag kalla á.

Góða helgi.