Sjúkraliðar láta til sín taka
Nýtt fólk tekur við forystu í svæðisdeildunum, málefni sjúkraliða fá pláss í fjölmiðlum og við undirbúum mikilvæga vinnu um menntun, mönnun og starfssvið stéttarinnar. Í vikunni sendum við einnig Alþingi umsögn um fjárlagafrumvarpið. Markmiðið er að styrkja stöðu sjúkraliða og tryggja að menntun þeirra, þekking og ábyrgð fái að njóta sín.

Á aðalfundi svæðisdeildar höfuðborgarsvæðisins var Kristbjörg Sóley Hauksdóttir kjörin formaður. Nýir formenn hafa einnig tekið við í tveimur öðrum svæðisdeildum: Sólveig Sigurðardóttir á Vestfjörðum og Anna Guðný Laxdal Magnúsdóttir í Vestmannaeyjum. Nýir fulltrúar hafa jafnframt verið kjörnir í stjórnir þessara deilda. Ég óska þeim öllum innilega til hamingju með kjörið.
Ég hlakka til að kynnast þessum efnilegu sjúkraliðum, heyra hugmyndir þeirra og vinna með þeim að því að bæta kjör og starfsaðstæður og skapa fleiri tækifæri til faglegs framgangs. Svæðisdeildirnar eru mikilvægur vettvangur fyrir þessa samvinnu. Þar hittast félagsmenn, bera saman reynslu sína og koma hugmyndum og ábendingum á framfæri. Formenn deildanna eiga jafnframt sæti í félagsstjórn og taka þannig þátt í að móta starf félagsins á landsvísu.
Fagþekking sjúkraliða á erindi í umræðuna
Á miðvikudag birtist viðtal við mig á mbl.is undir fyrirsögninni „Ekki metnir að verðleikum“. Þar ræddi ég um þá upplifun sjúkraliða að menntun þeirra og fagþekking væru ekki nægilega metnar í störfum þeirra. Sjúkraliðar þurfa að hafa áhrif á ákvarðanir um mönnun, þjónustu og verkaskiptingu. Reynsla þeirra og fagþekking eiga að nýtast við þróun heilbrigðisþjónustunnar.
Í Morgunblaðinu í dag er fjallað um að starfsfólk á Landspítala kynni sig sem sjúkraliða án tilskilinna starfsréttinda. Félagið hefur ítrekað tekið málið upp við stjórnendur. Þrátt fyrir áréttingu til deildarstjóra síðastliðinn vetur koma enn upp slík tilvik.
Sjúkraliði er lögverndað starfsheiti. Sjúklingar eiga að geta treyst því að kynning starfsfólks gefi rétta mynd af menntun þess og stöðu. Þótt verkefni nema og sjúkraliða geti skarast veitir það ekki rétt til að nota starfsheitið án tilskilins leyfis. Nemar eiga að fá góða handleiðslu og tækifæri til að læra í starfi. Fræðsla um starfsréttindi, skyldur og faglega ábyrgð þarf jafnframt að hefjast strax í upphafi náms. Þannig stuðlum við að trausti og góðu samstarfi.
Fjárveitingar þurfa að fylgja verkefnunum
Í gær sendum við nefndasviði Alþingis umsögn félagsins um fjárlagafrumvarp ársins 2027. Þar köllum við eftir því að fjárveitingar taki mið af raunverulegri mannaflaþörf í heilbrigðis- og öldrunarþjónustu.

Við leggjumst gegn því að 1% fækkun stöðugilda verði sjálfstætt markmið innan heilbrigðisþjónustunnar. Áður en störfum er fækkað þarf að meta áhrifin á þjónustu, öryggi og álag. Nýjum hjúkrunar- og þjónustuúrræðum þurfa jafnframt að fylgja fjármagnaðar mannaflaáætlanir.
Við óskum eftir kostnaðarmetinni og tímasettri áætlun um eflingu sjúkraliðanáms og nýliðun, með áherslu á vinnustaðanám og handleiðslu, og ítrekum tillögu um tilraunaverkefni með launað sjúkraliðanám. Aukin ábyrgð þarf að endurspeglast í kjörum samkvæmt kjarasamningum. Við höfum óskað eftir fundi með fjárlaganefnd til að fylgja áherslum okkar eftir.
Kjör og réttindi þurfa stöðuga athygli
Við höfum einnig skoðað hvaða áhrif flutningur kjarasamningsumboðs Reykjavíkurborgar til Sambands íslenskra sveitarfélaga getur haft á félagsmenn.
Við vinnum jafnframt að yfirferð undanþágulista fyrir árið 2027, þar sem lagt er til hvaða störf verði undanþegin verkfallsheimild vegna nauðsynlegrar þjónustu. Lög gera ráð fyrir samráði við stéttarfélög um þessa lista. Í þeirri vinnu þarf að gæta öryggis sjúklinga og standa vörð um raunhæfan verkfallsrétt félagsmanna. Beiðnum um fjölgun starfa á listunum þurfa að fylgja skýrar upplýsingar og rök.
Bleiki dagurinn minnir okkur á fólkið
Bleiki dagurinn var miðvikudaginn 21. október. Hann er tilefni til að sýna konum sem hafa greinst með krabbamein stuðning og samstöðu, standa með aðstandendum og minnast þeirra sem við höfum misst. Dagurinn getur líka vakið erfiðar tilfinningar og minningar, eins og Krabbameinsfélagið hefur bent á. Á bak við hvert verkefni er manneskja með sína sögu, óskir og áhyggjur. Umhyggjan sem einkennir störf sjúkraliða þarf líka að ná til samstarfsfólks og okkar sjálfra.
Nú styttist í Sjúkraliðadaginn 19. nóvember og undirbúningur 60 ára afmælis félagsins heldur áfram. Vinnan við sögu félagsins hefur verið gefandi. Í gömlum blöðum, myndum og frásögnum birtist fólkið sem lagði grunninn að því félagi sem við eigum í dag. Sagan minnir okkur á gildi þess að gefa kost á sér, spyrja spurninga og fylgja málum eftir þótt árangurinn láti bíða eftir sér. Takk fyrir samtölin, ábendingarnar og framlag ykkar.
Ég óska ykkur góðrar helgar!



