Þegar kerfið treystir á þolmörkin
Það er stundum eins og heilbrigðiskerfið gangi á einhvers konar þjóðlegri trú um að starfsfólkið reddi þessu alltaf einhvern veginn. Og það er auðvitað þægilegt fyrir kerfið. Þá þarf minna að laga, fjármagna, skipuleggja og hlusta. En við sjúkraliðar vitum betur. Þjónustan verður ekki tryggð með þökkum og fallegum orðum um mikilvægi mannauðs. Hún verður tryggð með góðri mönnun og vinnuaðstöðu, skýru skipulagi og raunverulegri eftirfylgni þegar starfsfólk bendir á það sem betur má fara.

Sjúkraliðar þurfa að sjást
Í vikunni áttum við fund með Landspítala vegna stöðu sjúkraliða á Bráðamóttöku í Fossvogi. Þar fórum við yfir ábendingar félagsins um mönnun, skráningu starfsheita, ráðningar, ábyrgð og sýnileika sjúkraliða í daglegu starfi. Við lögðum sérstaka áherslu á að sjúkraliðar eigi að vera skráðir sem löggilt heilbrigðisstétt í kerfum spítalans. Það skiptir máli, bæði fyrir faglega stöðu stéttarinnar, ábyrgð í starfi og öryggi þjónustunnar. Ef sjúkraliðar verða ósýnilegir í kerfunum er stutt í að þeir verði líka ósýnilegir í ákvarðanatökunni. Einnig var rætt um mikilvægi þess að skýra betur faglega ábyrgð, verkaskiptingu og hvernig nýta megi betur þá fagþekkingu og reynslu sem sjúkraliðar búa yfir. Þetta var mikilvægt samtal, en eins og alltaf skiptir mestu að samtalið leiði til raunverulegra úrbóta.
Vinnuaðstaða er ekki aukaatriði
Þá var einnig fundað með stjórnendum Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja þar sem rætt var um skipulag og vinnuaðstöðu sjúkraliða, fyrirhugaða uppfærslu á stofnanasamningi og önnur starfsmannamál.

Þar, eins og annars staðar, skiptir máli að sjúkraliðar búi við aðstæður sem endurspegla ábyrgð þeirra, menntun og mikilvægi í þjónustunni. Vinnuaðstaða hefur mikil áhrif á líðan starfsfólks, öryggi þjónustunnar, starfsánægju og möguleika fólks til að sinna starfi sínu af fagmennsku. Og þegar rætt er um stofnanasamninga og starfsumhverfi þarf að horfa á raunveruleg störf sjúkraliða, álagið sem fylgir þeim og þá ábyrgð sem þeir bera í daglegum störfum..
Við munum halda áfram að fylgja þessum málum eftir, því staða sjúkraliða snýst um virðingu, ábyrgð, fagmennsku og öryggi þjónustunnar.
Líðan sjúkraliða þarf að leiða til aðgerða
Við áttum einnig annan fund á Landspítala þar sem farið var yfir könnun um líðan sjúkraliða. Ég hef áður fjallað um niðurstöðurnar, sjá hér: Ný könnun meðal sjúkraliða – álag og streita útbreidd í starfi Þær sýna að sjúkraliðar upplifa verulegt álag og streitu. Þær benda líka á það sem sjúkraliðar hafa lengi sagt og ætti ekki að koma neinum á óvart. Það vantar fleiri sjúkraliða!
Svona samtöl skipta máli, en þau þurfa líka að leiða til aðgerða. Við höfum því ákveðið að halda samtalinu áfram og vinna að leiðum sem styðja betur við starf og starfsumhverfi sjúkraliða. Líðan starfsfólks er ekki aukaatriði. Hún er forsenda þess að hægt sé að veita örugga og góða þjónustu.
Raunfærnimat og ábyrg hagsmunagæsla
Í vikunni fundaði félagsstjórn Sjúkraliðafélagsins. Þar var farið yfir ályktun svæðisdeildar höfuðborgarsvæðisins, álit lögmanns um lögmæti raunfærnimats og þá umræðu sem átt hefur sér stað um meint athafnaleysi félagsins í málinu. Félagsstjórn samþykkti bókun þar sem fullyrðingum um að félagið hafi ekki staðið vörð um gæði sjúkraliðanáms er hafnað. Þvert á móti hefur Sjúkraliðafélagið sinnt hlutverki sínu af ábyrgð, fylgt málinu eftir og verið í góðu og uppbyggilegu samráði og samstarfi við hlutaðeigandi aðila um framkvæmd raunfærnimats á sjúkraliðabraut.
Það er mikilvægt að þessi umræða fari fram á málefnalegum grunni. Raunfærnimat er stórt mál. Það snertir menntun, faglega stöðu sjúkraliða, réttindi, gæði náms og traust til lögverndaðs starfsheitis. Félagið mun áfram standa vörð um að framkvæmdin sé fagleg, lögmæt og í samræmi við hagsmuni sjúkraliðastéttarinnar. Við tökum gagnrýni alvarlega. Við rýnum ábendingar. Við leitum lögfræðilegs álits þegar þess þarf. Við eigum samtal við þá aðila sem bera ábyrgð á framkvæmdinni. En við verðum líka að halda því til haga þegar rangar eða einhliða fullyrðingar eru settar fram um störf félagsins.
Sjúkraliðafélagið hafnar því að mælikvarðinn á virka hagsmunagæslu sé hvort félagið gefi út opinberar mótmælayfirlýsingar. Hagsmunagæsla fer fram í samtölum, á fundum, með formlegum ábendingum, lögfræðilegri rýni, eftirfylgni og ábyrgri málsmeðferð. Og þar hefur félagið ekki setið hjá.
Vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar
Í vikunni sóttum við einnig fund þar sem fjallað var um Vorskýrsla kjaratölfræðinefndar 2026 Slík gögn eru mikilvæg fyrir kjaralega umræðu, því þau setja launaþróun, efnahagsstöðu og stöðu vinnumarkaðar í samhengi.

Fyrir okkur er þó alltaf ljóst að á bak við allar tölur eru sjúkraliðar, heimili, vaktir, ábyrgð og störf sem samfélagið getur ekki verið án. Kjaramál sjúkraliða verða að taka mið af raunveruleika stéttarinnar. Sjúkraliðar vinna störf sem krefjast þekkingar, reynslu, úthalds, mannlegrar nándar og mikillar ábyrgðar. Það þarf að endurspeglast í kjörum, starfsaðstæðum og virðingu fyrir starfinu.
Þessi vika sýnir vel hversu fjölþætt starfið okkar hér á skrifstofunni er. Verkefnin eru ólík, en þau eiga sér einn sameiginlegan þráð. Að standa vörð um sjúkraliða. Það er hlutverk félagsins og það verkefni munum við áfram sinna af festu, ábyrgð og heilindum.
Við vitum að kerfið reddar sér ekki sjálft. Það þarf fólk, fagmennsku, mönnun, virðingu og vilja til að laga það sem þarf að laga. Þar mun Sjúkraliðafélag Íslands halda áfram að láta til sín taka.
Góða helgi.