Kjaramál, innra starf og alþjóðleg samvinna
Í þessari viku hefur verið unnið að fjölbreyttum verkefnum sem tengjast kjaramálum, stefnumótun félagsins og alþjóðlegu samstarfi. Þar má nefna áframhaldandi vinnu við pörun starfa hjá sveitarfélögum, vinnu við áfangasamkomulag II vegna sjúkraliða hjá sveitarfélögum og Reykjavíkurborg, fund framkvæmdastjórnar og þátttöku félagsins í ráðstefnu og stjórnarfundi EPN í Visby í Svíþjóð.

Pörun starfa hjá sveitarfélögum
Áfram hefur verið unnið að pörun starfa hjá sveitarfélögum, í samræmi við það sem samið var um í kjarasamningi Sjúkraliðafélags Íslands við Samband íslenskra sveitarfélaga 2024 -2025. Sú vinna er nú á lokametrunum og tekur mið af starfslýsingum í starfsmati Reykjavíkurborgar. Í þessari vinnu hefur félagið lagt áherslu á að störf sjúkraliða séu metin út frá raunverulegu inntaki starfsins, menntun, ábyrgð og þeim verkefnum sem sjúkraliðar sinna í daglegu starfi. Það skiptir miklu máli að pörunin sé vönduð, samræmd og gagnsæ, enda getur niðurstaðan haft áhrif á hvernig störf sjúkraliða eru metin til framtíðar.
Áfangasamkomulag II
Einnig hefur verið unnið að lokaútfærslu á áfangasamkomulagi II vegna sjúkraliða sem starfa hjá sveitarfélögum og Reykjavíkurborg. Sú vinna er hluti af stærra verkefni sem samið hefur verið um í áföngum til að leiðrétta laun á hinum kynskipta vinnumarkaði. Í kjarasamningum árið 2024 var gert áfangasamkomulag II milli BSRB og viðsemjenda þess. Í þeirri vinnu hefur Sjúkraliðafélagið, í samstarfi við BSRB, lagt ríka áherslu á að sjúkraliðar fái réttmæta leiðréttingu á launum sínum. Niðurstaðan varð sú að samkomulag náðist um að sjúkraliðar sem starfa hjá sveitarfélögum og Reykjavíkurborg fái hlut BSRB óskiptan. Þetta er mikilvæg niðurstaða. Nú skiptir máli að útfærslan verði skýr og að launabreytingarnar skili sér til sjúkraliða. Breytingarnar gilda frá 1. apríl 2025 og munu því koma til framkvæmda frá og með apríllaunum 2025. Það er von mín að þetta áfangasamkomulag, sem hefur tekið tíma að útfæra, komi til framkvæmda um næstu mánaðamót.
Fundur framkvæmdastjórnar
Í vikunni kom framkvæmdastjórn félagsins saman og fór yfir stefnumarkandi mál félagsins. Rætt var um stöðu helstu verkefna, forgangsröðun næstu vikna, innra starf, þjónustu við félagsmenn og þau mál sem mikilvægt er að fylgja eftir. Þar má nefna úrvinnslu fulltrúaþings, raunfærnimat á sjúkraliðabraut og upplýsingagjöf á heimasíðu félagsins. Dagleg þjónusta við félagsmenn var einnig til umræðu, enda skiptir hún miklu máli í starfi félagsins. Jafnframt þarf félagið að halda vel utan um stærri stefnumál sem varða stöðu sjúkraliða til lengri tíma. Stefna BSRB er jafnframt stefna félagsins, til viðbótar við þær áherslur sem Sjúkraliðafélagið setur fram á hverjum tíma. Á síðustu árum hefur farið fram umfangsmikil stefnumótun hjá félaginu. Sú vinna hefur styrkt innra starf félagsins, lyft ásýnd þess og gert sjúkraliða sýnilegri í samfélagsumræðunni.
Einnig var rætt um þátttöku félagsins í Verkiðn – Mín framtíð 2027. Að þessu sinni er ætlunin að skoða hvort framhaldsskólarnir séu reiðubúnir að tilnefna þátttakendur í sjúkraliðakeppni. Slík þátttaka getur verið mikilvæg leið til að kynna sjúkraliðastarfið, vekja áhuga á náminu og gera störf sjúkraliða sýnilegri meðal ungs fólks og í samfélaginu almennt. Þessi vinna endurspeglar vel hlutverk félagsins. Við vinnum bæði að úrlausn einstakra mála og að langtímahagsmunum stéttarinnar.
EPN-ráðstefna í Visby
Fulltrúar félagsins tóku einnig þátt í ráðstefnu EPN í Visby í Svíþjóð. Þar komu saman fulltrúar sjúkraliða frá Evrópu til að ræða sameiginleg málefni, stöðu stéttarinnar, mönnun, faglega ábyrgð og framtíð heilbrigðisþjónustunnar. Á ráðstefnunni var meðal annars fjallað um samfélagslegan viðbúnað og hlutverk heilbrigðisstétta þegar á reynir. Sú umræða á vel við hér á landi, enda hefur reynslan sýnt að fagfólk í framlínu gegnir lykilhlutverki þegar álag eykst í heilbrigðis- og velferðarþjónustu.
Þátttaka í EPN gefur félaginu mikilvægt tækifæri til að bera saman stöðu sjúkraliða milli landa, læra af reynslu annarra og koma sjónarmiðum íslenskra sjúkraliða á framfæri. Margar af þeim áskorunum sem ræddar voru á ráðstefnunni eru okkur kunnuglegar. Þar má sérstaklega nefna umræður frá Noregi, þar sem bent var á sömu atriði og við höfum lengi haldið á lofti: ófullnægjandi mönnun, mikið vinnuálag, þörf fyrir skýrari starfsþróun, mikilvægi menntunar, aukna faglega ábyrgð og nauðsyn þess að störf í umönnun og heilbrigðisþjónustu séu metin að verðleikum.
Stjórnarfundur EPN
Í kjölfar ráðstefnunnar var haldinn stjórnarfundur EPN. Þar var farið yfir áframhaldandi samstarf aðildarlanda og verkefni næstu missera. Stefnt er að því að næsta ráðstefna EPN verði haldin í Finnlandi vorið 2029. Þessi vettvangur skiptir máli fyrir Sjúkraliðafélagið. Með þátttöku í alþjóðlegu samstarfi styrkjum við tengsl við systurfélög, fáum innsýn í þróun mála í öðrum löndum og getum nýtt þá þekkingu í okkar eigin vinnu hér heima.
Á fundinum kom einnig fram tillaga um að efla samstarfið enn frekar með því að skipa starfshóp starfandi sjúkraliða sem styður við áherslur stjórnar EPN. Slík tillaga er áhugaverð og getur styrkt tengslin milli stefnumótunar og daglegs starfs sjúkraliða á vettvangi. Það skiptir máli að rödd starfandi sjúkraliða heyrist í alþjóðlegu samstarfi, enda eru það þeir sem þekkja best raunverulegar áskoranir starfsins. Það er mikilvægt að íslenskir sjúkraliðar séu hluti af þessari umræðu. Staða sjúkraliða, menntun þeirra, ábyrgð og framtíðarhlutverk í heilbrigðisþjónustu eru ekki aðeins íslensk viðfangsefni, heldur hluti af stærri umræðu í Evrópu.
Þessi vika endurspeglar vel breiddina í starfi félagsins. Unnið er að kjaramálum, mati starfa, stefnumótun, þjónustu við félagsmenn og alþjóðlegu samstarfi. Öll þessi verkefni tengjast sama markmiði: að styrkja stöðu sjúkraliða og tryggja að störf þeirra séu metin að verðleikum. Við munum áfram fylgja þessum málum eftir, leggja áherslu á skýra og betri upplýsingagjöf til félagsmanna og taka virkan þátt í umræðu um framtíð sjúkraliða og heilbrigðisþjónustunnar.
Góða helgi.