Við höfum byggt upp, og höldum áfram
Sjúkraliðafélag Íslands hefur á undanförnum árum unnið markvisst að því að styrkja stöðu sjúkraliða, bæði faglega og kjaralega. Sú vinna er ekki alltaf sýnileg öllum frá degi til dags. Stór hluti félagsstarfs fer fram í samtölum, samráði, nefndum, fundum, stefnumótun, umsögnum, reglugerðarvinnu, kjaravinnu og eftirfylgni sem krefst tíma, úthalds og þrautseigju. Og árangurinn skiptir máli.

Við höfum beitt okkur fyrir því að rödd sjúkraliða heyrist skýrar innan heilbrigðisstofnana og að sjúkraliðar eigi sæti við borðið þar sem faglegar ákvarðanir eru teknar. Það skiptir miklu máli. Sjúkraliðar þekkja veruleikann á gólfinu, sjá hvernig kerfið virkar í daglegu starfi og vita hvar álagið birtist, hvar þjónustan gengur vel og hvar þarf að gera betur.
Við höfum unnið að því að efla starfsþróun sjúkraliða og opna nýjar leiðir til framgangs í starfi. Diplómanám fyrir sjúkraliða við Háskólann á Akureyri er stór áfangi í þeirri vegferð. Það er ekki aðeins námsleið, heldur viðurkenning á því að sjúkraliðar eru fagstétt sem á að hafa raunverulega möguleika til að byggja ofan á þekkingu sína, reynslu og ábyrgð.

Við höfum einnig komið að mikilvægri vinnu vegna breytinga á reglugerð um sérhæfða sjúkraliða. Slíkar breytingar skipta miklu máli fyrir framtíð stéttarinnar, því þær varða faglega stöðu, ábyrgð, starfsþróun og það hvernig heilbrigðiskerfið nýtir þá miklu þekkingu sem sjúkraliðar búa yfir.
Innan félagsins sjálfs hefur einnig verið unnið að mikilvægri uppbyggingu. Ný heimasíða hefur verið tekin í notkun, skjalakerfi innleitt, stefnumótun unnin með sjúkraliðum, trúnaðarmönnum, félagsstjórn og fulltrúum starfsnefnda, og lög félagsins endurskoðuð í samræmi við áherslur félagsins á hverjum tíma. Félagið hefur lagt áherslu á að vinna í samræmi við stefnu sína, efla innviði og skapa sterkari grunn fyrir áframhaldandi starf.
Á 35. fulltrúaþingi félagsins, sem nýverið fór fram, var að venju farið yfir starfsemi félagsins, ársreikninga, skýrslu stjórnar, helstu verkefni liðins starfsárs og þau mál sem fram undan eru. Fulltrúaþingið er mikilvægur vettvangur þar sem félagsmenn, kjörnir fulltrúar og forysta félagsins ræða stefnu, áherslur, áskoranir og framtíðarverkefni félagsins. Þar er litið yfir farinn veg, en ekki síður horft fram á við.
Þetta er áminning um að árangur verður til með stöðugri vinnu. Barátta fyrir sjúkraliða byggist ekki á einu átaki, einni grein, einum fundi eða einni ákvörðun. Hún byggist á úthaldi, samtali, samstöðu og þeirri trú að staða sjúkraliða skipti máli, fyrir stéttina sjálfa, fyrir skjólstæðinga, fyrir aðstandendur og fyrir heilbrigðiskerfið allt. En verkefninu er hvergi nærri lokið.
Næsta skref er að gera þessa vinnu enn sýnilegri og aðgengilegri félagsmönnum. Ég hef á síðustu árum skrifað föstudagspistla til að upplýsa félagsmenn um þau verkefni sem félagið vinnur að hverju sinni. Með nýrri heimasíðu höfum við lagt áherslu á að birta hagnýtar upplýsingar og skýra betur framsetningu á verkefnum félagsins. Sú vinna er enn í innleiðingu og er núna unnið að því að uppfæra trúnaðarmannakerfið og umsóknarsíður. Markmið okkar með þessu er að félagsmenn geti með einföldum hætti nálgast réttar, skýrar og gagnlegar upplýsingar.
Félagsmenn eiga að finna að félagið sé nálægt þeim, að rödd þeirra skipti máli og að þeir geti fylgst með þeim verkefnum sem eru í vinnslu. Við þurfum að halda áfram að tala skýrt um réttindi, skyldur, starfskjör, starfsþróun, mönnun, vinnuumhverfi og faglega stöðu sjúkraliða.
Ég er stolt af þeirri vinnu sem hefur verið unnin. Ég er þakklát samstarfsfólkinu, skrifstofunni og þeim fjölmörgu sjúkraliðum sem hafa lagt sitt af mörkum í félagsstarfi, trúnaðarmannastarfi, nefndum, samtali og stefnumótun. Öll þessi vinna skiptir máli. Nú höldum við áfram. Við byggjum á þeim grunni sem lagður hefur verið, gerum starfið sýnilegra, upplýsingarnar skýrari og rödd sjúkraliða enn sterkari. Sjúkraliðar eru fagstétt sem sinna kjarnastarfi heilbrigðisþjónustunnar.
Góða helgi!

