Aðalfundur BSRB
Á aðalfundi BSRB var skýrsla stjórnar lögð fram, þar sem farið er yfir helstu verkefni bandalagsins frá síðasta aðalfundi. Þar er m.a. fjallað um varnarbaráttu BSRB gegn áformum stjórnvalda um afnám áminningarskyldunnar og annarra réttinda opinbers starfsfólks, auk gagnrýni á skort á samráði við launafólk og stéttarfélög.

Skýrslan fjallar einnig um efnahags- og kjaramál, stöðu heimilanna, húsnæðismál, jafnréttismál og Kvennaár. Þar er dregið fram mikilvægi þess að standa vörð um öfluga almannaþjónustu, tryggja sanngjörn kjör og verja grunnréttindi starfsfólks sem sinnir mikilvægum störfum í þágu samfélagsins.
Fyrir Sjúkraliðafélag Íslands eru þessi mál nátengd daglegri hagsmunabaráttu félagsins. Sjúkraliðar eru stór og mikilvæg fagstétt innan heilbrigðisþjónustunnar og eiga ríka hagsmuni af því að réttarstaða opinbers starfsfólks sé skýr, kjör séu tryggð og að ákvarðanir um breytingar á starfsumhverfi séu teknar í raunverulegu samráði við stéttarfélögin.
Skýrsla stjórnar gefur þannig góða mynd af sameiginlegum verkefnum aðildarfélaga BSRB og þeirri breiðu baráttu sem fram fer fyrir réttindum, kjörum og virðingu starfsfólks í almannaþjónustu. Hún undirstrikar jafnframt mikilvægi þess að standa vörð um velferðarkerfið og þann mannauð sem heldur því gangandi á hverjum degi. Lesa má skýrsluna í heild sinni hér: Stefnumótun og fræðsla - Skýrsla stjórnar 2026