Innanlandsferð Sjúkraliðafélags Íslands 9 – 13. júlí 2026
🌿 Barðaströnd – 5 daga upplifunarferð 🌿
Langar þig að stíga út úr amstri dagsins og njóta kyrrðar, náttúru og nærveru við gott fólk? Þá er þessi ferð fyrir þig.

Við dveljum í fallegu umhverfi í Bjarkarholti á Barðaströnd, í Krossholti við Hagavaðal, með stórbrotið útsýni yfir Breiðafjörð og Snæfellsjökul.
✨ Innifalið í ferðinni:
• Gisting í uppábúnum rúmum (2–3 manna herbergi)
• Allur matur
• Leiðsögn og utanumhald
🥾 Dagskrá og upplifun:
• Þrjár léttar dagsgöngur (3–6 klst.) á auðveldum stígum
• Fjölbreytt og falleg náttúra
🧘♀️ Líkamsvitund & vellíðan:
• Morgunhreyfingar og teygjur
• Róandi æfingar og slökun í lok dags
• Flot og flotupplifun
💧 Aðstaða:
• Ótakmarkaður aðgangur að sundlaug og heitum potti (100 m fjarlægð)
🔥 Lokakvöld:
• Grill, söngur og notaleg samvera
👣 Fararstjóri:
Úlfheiður Kaðlín Ingvarsdóttir, sjúkraliði og leiðsögumaður
📚 Fræðsla, skipulag og leiðsögn:
Lilja Steingrímsdóttir, hjúkrunarfræðingur, sálmeðferðarfræðingur og gönguleiðsögumaður
📅 Skráning & verð:
• Opnað fyrir skráningu 22. apríl kl. 13:00 á mínum síðum/sölutorg á heimasíðu félagsins
• Hámarksfjöldi: 17 þátttakendur
• Verð fyrir félagsmenn: kr. 95.000 (heildarverð kr. 140.000)
• Staðfestingargjald: kr. 10.000 við skráningu (óendurkræft)
• Eftirstöðvar: kr. 85.000 rukkaðar í byrjun júní
• 10 orlofspunktar fyrir ferð. Safnast saman í bíla og kostnaður dreift.
👉 Sjá nánar í orlofsblaði 2026
🌊 Taktu frá tíma fyrir sjálfa/n þig – náttúran, róin og góð samvera bíða þín á Barðaströnd.