Málþing trúnaðarmanna BSRB
Fræðslunefnd BSRB stendur fyrir málþingi trúnaðarmanna BSRB á Hilton Reykjavík Nordica þann 3. september kl. 10:00–17:00
Markmið málþingsins er að efla trúnaðarmenn í hlutverki sínu, skapa vettvang fyrir samtal og tengslamyndun og veita hagnýt verkfæri til að takast á við breyttan vinnumarkað og áskoranir samtímans. Dagskráin samanstendur af fyrirlestrum, málstofum og verkefnavinnu þar sem fjallað verður um fjölbreytt málefni sem snerta störf trúnaðarmanna.
Meðal umfjöllunarefna eru áhrif tæknibreytinga og samfélagsbreytinga á störf, lestur og túlkun kjarasamninga, vinnustaðalýðræði og vinnustaðamenning, inngilding og sálfélagslegt öryggi á vinnustöðum.
Frekari upplýsingar fást þegar nær dregur, en endilega takið daginn frá og óskið eftir leyfi frá vinnu vegna trúnaðarstarfa fyrir Sjúkraliðafélagið.