Beint í efni

Samstaða um kjör og framtíð sjúkraliða

Það er líflegur neisti í sjúkraliðum á Austurlandi!

Í vikunni fór ég með framkvæmdastjórn félagsins í heimsókn til svæðisdeildar Austurlands. Við fengum góða kynningu á starfseminni á hjúkrunarheimilinu á Seyðisfirði og á Dyngju og hittum síðan sjúkraliða af svæðinu á spjallfundi.

9. október 2026

Þorbjörg Sigurbjörnsdóttir formaður deildarinnar, Ester Rósa Halldórsdóttir, Júlíanna Þórbjörg Ólafsdóttir, Gunnþórunn Heidenreich og Soffía Benjamínsdóttir, sem skipa stjórn svæðisdeildarinnar, tóku frábærlega á móti okkur. Það er alltaf gefandi að heyra af daglegu starfi sjúkraliða og því sem þeim liggur á hjarta. Samveran gaf okkur aukinn kraft til að vinna að málefnum stéttarinnar. Kærar þakkir fyrir hlýjar móttökur, upplýsandi og góða samveru!

Nú reynir á efndirnar

Kjaramálanefnd félagsins fundaði einnig í vikunni til að fara yfir stöðuna í kjaramálum. Við funduðum síðan með BSRB um sama málefni. Félögin fylgdust náið með framvindu viðræðnanna á almenna vinnumarkaðnum, mátu stöðuna jafnóðum og bjuggu sig undir ákvarðanir um næstu skref. Það var léttir að sjá að samkomulag náðist í gær og kjarasamningar á almenna vinnumarkaðnum halda. Stjórnvöld hafa boðað aðhald í gjaldskrárhækkunum og aðgerðir í húsnæðis- og barnabótamálum. Við munum fylgjast vel með hvort þessi loforð verði að veruleika.

Verðbólga mældist 5,9% í september og háir vextir íþyngja mörgum heimilum. Allt kapp þarf nú að leggja á að lækka verðbólgu og vexti og auka kaupmátt. Sjúkraliðar eiga að geta séð fyrir sér og sínum af launum fyrir venjulega vinnuskyldu. Árangurinn þarf að sjást í daglegu lífi fólks. Það á að vera hægt að kaupa í matinn án þess að fara á hausinn.

Fagþekking á að sjást í kjörum

Tilmæli ríkisstjórnarinnar um launaaðhald mega ekki verða afsökun fyrir því að fresta réttri launaröðun eða viðurkenningu á viðbótarmenntun sjúkraliða. Vinnan við stofnanasamninga þarf að halda áfram. Fagþekking og ábyrgð sjúkraliða eiga að sjást í launum.

BSRB gagnrýndi í vikunni áform fjárlagafrumvarpsins um fækkun ríkisstarfsmanna og niðurskurð í almannaþjónustu. Ég tek undir þá gagnrýni og er núna unnið að okkar eigin umsögn um fjárlagafrumvarpið. Þar munum við ítreka enn og aftur að mönnun þurfi að ráðast af þjónustuþörf. Þegar of fáir sinna of mörgum verkefnum kemur það niður á starfsfólki og skjólstæðingum. Fjárlög þurfa að styðja við ráðningar sjúkraliða, menntun þeirra og aðstæður til að haldast í starfi.

Fyrirhugaður starfshópur heilbrigðisráðherra um mönnun, menntun og starfssvið sjúkraliða er því kærkomið skref. Þar þarf að móta skýrar tillögur um hvernig fleiri geti lokið námi og hvernig þekking sjúkraliða nýtist betur. Ég vil sjá raunhæfar leiðir til að fólk velji sjúkraliðastarfið að ævistarfi.

Menntun þar að nýtast í starfi

Við höfum þegar lagt tillögur um eflingu námsins fyrir mennta- og barnamálaráðherra, meðal annars tilraunaverkefni um launað sjúkraliðanám. Tekjumissir á námstíma getur lokað leiðinni fyrir fólk sem vill mennta sig. Jafnframt þarf að tryggja gæði vinnustaðanáms og gefa leiðbeinendum tíma til að sinna nemendum.

Menntunin þarf síðan að skila sér í verkefnum og kjörum. Það gengur ekki að treysta á fagþekkingu sjúkraliða í þjónustunni en ráða þá og launa sem ófaglært starfsfólk. Vinnuveitendur þurfa að viðurkenna þá þekkingu sem þeir nýta og tryggja að sérhæfing skapi raunverulega möguleika til framgangs.

Réttindum á að fylgja eftir

Hjá okkur heldur vinna við framkvæmd kjarasamninga og réttindamál félagsmanna áfram. Rétt launaröðun, greiðslur fyrir vinnu, námsleyfi og vinnutími hafa bein áhrif á afkomu og líf sjúkraliða. Ég hvet félagsmenn til að leita til trúnaðarmanna eða skrifstofunnar þegar eitthvað er óljóst. Reynsla ykkar af vinnustöðunum hjálpar okkur líka að sjá hvar þarf að bæta framkvæmdina.

Framkvæmdastjórn félagsins fundaði í vikunni um fjölmörg verkefni sem snerta sjúkraliða. Á dagskrá voru meðal annars staðan á vinnumarkaði og efnahagsmál, sjúkraliðanámið í framhaldi af fundi með menntamálaráðherra og mönnun á hjúkrunarheimilum. Kynning á sjúkraliðastarfinu í grunnskólum og fjölgun sjúkraliðanema voru einnig til umfjöllunar.

Þá var á dagskrá úrvinnsla hópastarfs trúnaðarmannaráðsfundarins 24.–25. september, málefni Örorkubótasjóðs og undirbúningur sextíu ára afmælis félagsins. Ég legg áherslu á að tillögur og sjónarmið trúnaðarmanna fái eftirfylgni og nýtist í starfi félagsins.

Þá er undirbúningur á afmælisútgáfu Sjúkraliðans í ferli. Það er ánægjulegt að geta litið yfir farinn veg um leið og við mótum næstu skref. Verkefni okkar eru skýr, - að verja kjör sjúkraliða og vinna að því að þekking þeirra nýtist og sé metin að verðleikum.

Góða helgi!