Beint í efni

Trúnaðarmannaráðsfundur

Trúnaðarmannaráðsfundur Sjúkraliðafélags Íslands verður haldinn dagana 24.–25. september 2026 á Hótel Hveragerði. Fundurinn er sameiginlegur vettvangur trúnaðarmanna og fulltrúa starfsnefnda félagsins. Þar komum við saman til að miðla reynslu, ræða stöðu mála á vinnustöðum, samræma áherslur og móta næstu skref í kjaramálum og faglegri þróun.

24. september 2026

Markmiðið er að styrkja heildarsýn félagsins, efla samvinnu og tryggja að ákvarðanir byggist á raunverulegri stöðu sjúkraliða um land allt.
Öllum kjörnum og skipuðum trúnaðarmönnum er boðið til fundarins. Jafnframt eru fulltrúar allra starfsnefnda, félagsstjórn, formenn deilda og kjaramálanefnd boðuð og taka þátt í fundinum.

Tímasetningar

Fimmtudagur 24. september
Fundur hefst kl. 13:00

Föstudagur 25. september
Fundi lýkur kl. 12:00

Gist verður eina nótt og haldið heim að fundi loknum.

Rútuferð

Boðið verður upp á rútuferð:

  • Brottför frá Grenásvegi 16 kl. 10:00 fimmtudaginn 24. september
  • Heimferð frá Hveragerði kl. 13:00 föstudaginn 25. september

Dagskrá

Nánari dagskrá og upplýsingar um skráningu verða auglýstar síðar.