Ályktun fulltrúaþings 2025
Á 34. fulltrúaþing Sjúkraliðafélags Íslands, sem haldið var í dag, samþykkti með samhljóða rödd ályktun þar sem kveðið er fast að orði um alvarlega stöðu sem upp er komin vegna yfirvofandi sjúkraliðaskorts. Eins og staðan blasir við núna má búast við að sjúkraliðum fækki verulega á næstu árum. Þessi fækkun kemur á versta hugsanlega tíma, þegar íslensku þjóðinni fjölgar ört á efri árum og þörfin fyrir öfluga hjúkrunarþjónustu verður meiri en nokkru sinni fyrr.
Sjúkraliðar eru ómissandi hlekkur í heilbrigðiskerfinu, starfsfólk sem stendur vaktina nótt sem dag við krefjandi aðstæður og álag sem sífellt eykst. Þrátt fyrir lykilhlutverk sitt njóta þeir ekki þeirra launa eða þess starfsumhverfis sem ábyrgð þeirra réttlætir. Í ályktuninni er bent á að stjórnvöld verði að rísa upp úr sófanum og sýna frumkvæði með skýrum og kröftugum aðgerðum. Nauðsynlegt er að stórauka kynningu á sjúkraliðanáminu, tryggja nemum aukinn fjárhagslegan stuðning, bæta verulega kjör og starfsumhverfi sjúkraliða og skapa aukin tækifæri til símenntunar og starfsþróunar.
Það má öllum vera ljóst að tími tómlætis er liðinn. „Hver ætlar að hjúkra þér þegar þú þarft á því að halda?“ Þessi spurning heyrist oftar, – og ætti að hljóma hátt og skýrt á öllum heimilum landsins og í huga þeirra sem bera ábyrgð á íslenskri heilbrigðisþjónustu. Sjúkraliðafélag Íslands hvetur stjórnvöld og samfélagið allt til að grípa til aðgerða áður en það verður um seinan. Ályktunina í heild sinni mál lesa hér:
Ályktun – Yfirvofandi sjúkraliðaskortur á Íslandi
34. fulltrúaþing Sjúkraliðafélags Íslands ályktar um þá grafalvarlegu stöðu sem komin er upp innan heilbrigðiskerfisins vegna fordæmalausrar fækkunar sjúkraliða. Mörg hundruð reynslumiklir sjúkraliðar eru að nálgast starfslok vegna aldurs. Á næstu 15 árum fjölgar eldri borgurum á Íslandi um 40%, en sjúkraliðum mun á sama tíma fækka um 40% ef ekkert verður að gert.
Þetta er fyrirliggjandi staðreynd og fyrirséð þróun, engu að síður hafa stjórnvöld látið hjá líða að grípa til nauðsynlegra aðgerða. Við blasir alvarlegur skortur á sjúkraliðum á næstu árum, á sama tíma og þjónustuþörfin í heilbrigðiskerfinu eykst gríðarlega. Sjúkraliðar sinna lykilhlutverki í hjúkrun og umönnun, oft við krefjandi aðstæður og undir miklu álagi. Þeir standa vaktina þegar mest á reynir, vinna í krefjandi starfsumhverfi og launakjör þeirra endurspegla ekki þá ábyrgð sem felst í starfinu.
Ef stjórnvöld bregðast ekki tafarlaust við með aðgerðum sem snúa að fjölgun sjúkraliða og bættu starfsumhverfi, stefnir í alvarlega þjónustuskerðingu sem mun bitna á öryggi, velferð og lífsgæðum landsmanna. Við krefjumst þess að stjórnvöld bregðist tafarlaust við með markvissum aðgerðum sem felast meðal annars í:
Öflugri kynningu á sjúkraliðanáminu og fjárhagslegum stuðningi við sjúkraliðanema. Verulega bættum launakjörum og starfsumhverfi sjúkraliða. Auknum tækifærum til starfsþróunar, með sérstakri áherslu á sjúkraliða með diplómapróf á háskólastigi.
Stjórnvöld verða að axla ábyrgð og tryggja að sjúkraliðar verði áfram ein af meginstoðum heilbrigðiskerfisins. Aðgerðaleysi og tómlæti er ekki lengur valkostur.