Beint í efni

Ávarp formanns 2025

Kæru þingfulltrúar, sjúkraliðar og góðir gestir.

Nú þegar ég set 34. fulltrúaþingi Sjúkraliðafélags Íslands, þá lítum við ekki aðeins yfir farinn veg – heldur horfum við líka fram á við. Þetta er stund samstöðu og sjálfskoðunar. Og fyrir mig – sem formaður ykkar – er það bæði heiður og ábyrgð að standa hér í dag og tala af einlægni og baráttuvilja. Á undanförnum árum hefur starfið okkar verið annasamt, - sjúkraliðar hafa staðið vaktina og haldið uppi gangverki heilbrigðiskerfisins, gengið í gegnum kjaraviðræður sem iðulega eru bæði langar og krefjandi.

Við höfum barist fyrir því að rödd sjúkraliða heyrist – ekki bara á vinnustöðum og á skrifstofunni, heldur hjá hinu opinbera, innan stofnana, í fjölmiðlum og í samfélaginu öllu. Við höfum náð árangri – með staðfestu, samstöðu og faglegum rökum. Við höfum knúið fram breytingar sem skipta máli. Virðing á ekki bara að birtast í orðum heldur í launum, í menntunartækifærum, í starfsþróun og í faglegri viðurkenningu. Sjúkraliðar eru ekki ósýnilegt bakland – heldur lifandi hluti heilbrigðisþjónustunnar – sýnilegir, mikilvægir og með rödd sem á að heyrast.

Við höfum náð samningum þar sem sérstaða sjúkraliða fékk þá viðurkenningu sem við höfum lengi krafist – og átt skilið. Diplómanám sjúkraliða hefur hlotið formlega viðurkenningu í reglugerð. Þetta er ekki formsatriði heldur faglegur sigur. Við höfum unnið okkur inn fyrir því að sérþekkingin og hæfnin sem diplómanámið veitir sé metin að verðleikum. Með því opnast nýjar leiðir – til meiri ábyrgðar, aukinnar sérhæfingar og sterkari stöðu innan heilbrigðisþjónustunnar. Þetta er vegferð sem eflir stéttina og tryggir gæði þjónustunnar. Tveir hópar hafa þegar útskrifast og yfir 80% sjúkraliða segjast vilja fara þessa leið. Þriðji hópurinn, 30 sjúkraliðar með diplómapróf, mun útskrifast núna í vor.

Það er áþreifanlegur árangur og skýr vísbending um vilja sjúkraliða til að þróast áfram í starfi, styrkja sig faglega og axla meiri ábyrgð. Við viljum vaxa. Og við viljum að það sé viðurkennt og umbunað. Þetta er ekki krafa um sérmeðferð – heldur réttlát staða fyrir störf sem skipta sköpum. Það var barátta að fá þessa viðurkenningu. Hún var ekki sjálfgefin. En hún markar stórt skref í að gera sjúkraliðastarfið að öflugu ævistarfi – þar sem ábyrgð, þekking og fagmennska mynda grunninn. Þessi breyting felur í sér von fyrir nýliðun, fyrir faglegt öryggi og fyrir vöxt heilbrigðisþjónustunnar.

Barátta okkar er aldrei lokið, - og enn erum við í kjaraviðræðum. Við höfum verið í viðræðum við Samband íslenskra sveitarfélaga þar sem unnið hefur verið að undirbúningi fyrir upptöku starfsmats. Í þeirri vinnu höfum við lagt mikla áherslu á að áunnin réttindi sjúkraliða, sérstaklega hvað varðar símenntun, haldist óbreytt. Þrátt fyrir viðleitni og samningsvilja hefur okkur miðað alltof hægt í að ná árangri, og í gær var tekin ákvörðun um að vísa kjaradeilunni til ríkissáttasemjara. Við erum einnig mikilvægri samvinnu við Reykjavíkurborg um Starfsmatið. Þar er unnið með Jafnlaunastofu og Starfsmats-nefnd að endurskoða matið. En markmiðið okkar er alveg skýrt: Að störf sjúkraliða verði metin af sanngirni og í takt við raunverulegt framlag þeirra og ábyrgð.

Samhliða þessu höldum við áfram vinnunni við að endurnýja stofnanasamningana okkar. Það er verkefni sem reynir á þolinmæði og þrautseigju – því samningar sem gerðir eru án fjármagns á friðartímum er vandasamt verkefni og krefjandi. En við gefumst ekki upp. Við leitum leiða til að styrkja stöðu sjúkraliða og þrýstum stöðugt á að samningarnir endurspegli ábyrgð og framlag okkar í heilbrigðisþjónustunni.

Kæru félagar

Við stöndum frammi fyrir flókinni framtíðarsýn. Og við verðum að horfast í augu við raunveruleikann. Núna er meðalaldur sjúkraliða 49 ár. Þriðjungur stéttarinnar mun hætta störfum á næstu 12 árum. Ef við bregðumst ekki við strax, mun skortur lama heilbrigðiskerfið. Þess vegna leggjum við hér á þinginu fram ályktun þar sem við köllum eftir tafarlausum aðgerðum stjórnvalda til að sporna við yfirvofandi sjúkraliðaskorti. Meðalaldur sjúkraliða hækkar ár frá ári, og ef ekkert er að gert mun sjúkraliðum fækka um 40%, - á sama tíma og fjöldi eldri borgara vex um 40%. Við verðum að gera sjúkraliðastarfið að raunverulegum valkosti fyrir ungt fólk – með aðgerðum, ekki orðum. Með betri kjörum, bættu vinnuumhverfi, öflugri símenntun og skýrri starfsþróun. Það þarf að sýna í verki að samfélagið metur þetta starf. Nýliðun krefst líka stuðnings við fjölbreyttan hóp.

Fjölmargir sjúkraliðar af erlendum uppruna starfa í kerfinu – og það er okkar hlutverk að tryggja að þeir fái þann stuðning sem þeir þurfa til að vaxa í starfi. Að veita öllum jöfn tækifæri til að styrkja sig og finna sinn stað er lykilatriði í sterkri framtíð stéttarinnar. Við vitum að eftirspurnin eftir hjúkrun og umönnun mun aukast. Fólki fjölgar í hópi eldri borgara, sjúkdómar verða flóknari og tæknin krefst meiri sérhæfingar. Við verðum að vera til staðar, með rétta þekkingu, með fagmennsku og með samheldni. Þjónusta framtíðarinnar þarf á öflugum sjúkraliðum að halda.

Sjúkraliðar gegna lykilhlutverki í þessari þjónustu. Við þurfum ekki aðeins að halda stöðu okkar – við þurfum að efla hana. Það er ekki nóg að tala um mikilvægi okkar – það þarf að mæta því með raunverulegum aðgerðum. Við krefjumst þess að laun okkar standist samanburð við önnur sambærileg störf – að jöfn laun séu greidd fyrir jafnverðmæt störf. Við krefjumst þess að kynbundinn launamunur á hinum kynskipta vinnumarkaði verði upprættur – í kvennastétt eins og okkar sem sinnum heilbrigðisþjónustu. Það er löngu tímabært að binda enda á þetta kerfisbunda misrétti. 

Kæru sjúkraliðar,

Samstaða okkar gefur okkur styrk. Hún byggist ekki á því að við séum alltaf sammála, heldur á þeirri staðfestu að standa saman þegar á reynir. Enginn hluti félagsins er mikilvægari í þessari samstöðu en þið, - þið sem sinnið trúnaðarstörfum fyrir félagið og á vinnustöðum sjúkraliða. Þið eruð brúin milli starfsfólks og stjórnenda, rödd félagsmanna og hreyfiaflið í réttindabaráttunni. Við höfum lagt mikla áherslu á að efla trúnaðarmannastarfið með fræðslu, ráðgjöf og traustum stuðningi, og tryggjum að þið og þeir haldist vel tengd félaginu. Allir þeir sem sinna trúnaðarstörfum fyrir félagið eru lykilaðilar í þeirri uppbyggingu sem við vinnum að, og framtíð okkar treystir á þá.

Á sama tíma höfum við, með frábæru starfsfólki skrifstofunnar, unnið markvisst að því að efla þjónustu félagsins. Þar er unnið af fagmennsku og eldmóð að því að tryggja að allir félagsmenn okkar fái þann stuðning sem þeir eiga rétt á.Við höfum aukið framboð á fræðslu- og námsstyrkjum, unnið að þróun nýrra námsleiða og aukinnar símenntunar. Við trúum því að réttur til þróunar og framfara eigi að vera sjálfsagður hluti starfsins – ekki forréttindi. Sjúkraliðar eiga skilið sömu möguleika og aðrar stéttir til að vaxa og þróast í starfi. Við vinnum nú að gerð nýrrar heimasíðu sem mun auðvelda aðgengi að upplýsingum, styrkja gagnsæi og efla tengsl félagsins við sitt fólk. Markmiðið er skýrt: að allir sjúkraliðar finni að þeir eigi alltaf skjól og stuðning í eigin félagi.

Við höldum áfram – með ykkur, fyrir ykkur. Og við höfum haft áhrif – í umsögnum, í samráðsgátt stjórnvalda, í starfshópum, á nefndarfundum Alþingis og í fjölmiðlum. Við höfum lagt fram lausnir og við höfum talað skýrt um það hvernig heilbrigðiskerfi við viljum – þar sem fagfólk ræður för, samvinna skiptir máli og þjónustan snúist um fólk, en ekki form. Við viljum heilbrigðiskerfi sem byggir á virðingu, samvinnu og fagmennsku – þar sem sjúkraliðar gegna lykilhlutverki. Þar sem við erum sýnileg, með rödd og ábyrgð – í teymum, í stefnumótun, í þróun þjónustunnar.

Sjúkraliðafélagið hefur einnig tekið virkan þátt á alþjóðavettvangi. Við höfum sótt fundi í Brussel og Genf, tekið þátt í mótmælum, ráðstefnum og átt samtöl við systurfélög í Evrópu.Við höfum haft rödd á sviði evrópskrar og alþjóðlegrar heilbrigðisbaráttu – rödd sem speglast í baráttu milljóna fagfólks um heim allan. Við höfum látið í okkur heyra og tekið þátt í samtölum á vettvangi sem skiptir máli. Við höfum líka unnið með öðrum heilbrigðisstéttum hér heima,– talað með einni rödd, staðið sameiginlega að umsögnum og aðgerðum, beitt lýðræðislegum vettvangi til að þrýsta á breytingar. Við vitum að ein rödd getur haft áhrif – en margar saman eru óstöðvandi. Samstaða stétta, fagleg eining og gagnkvæmur stuðningur gerir okkur enn sterkari. Við krefjumst þess að heilbrigðisstofnanir fái nauðsynlegt fjármagn og svigrúm til að byggja upp þjónustu, ráða til sín og halda í hæft fagfólk. Sjúkraliðar eigi þar skýra stöðu – með laun og ábyrgð sem endurspegla raunverulegt framlag þeirra. Við viljum kerfi sem hlúir að fólki – bæði starfsfólki og skjólstæðingum.

Kæru félagar,

Við ætlum ekki bara að verja stöðuna okkar. Við ætlum að byggja hana upp.

Við ætlum að tryggja að allir sjúkraliðar – óháð starfsvettvangi eða starfsreynslu – fái tækifæri til að njóta sín í starfi og verði metnir að verðleikum.

Við ætlum að sjá sjúkraliða með diplómapróf sem eðlilegan hluta teymisvinnu í heilbrigðisþjónustunni.

Við ætlum að tryggja að nýliðun verði markmið með skýra aðgerðaáætlun.

Við ætlum að efla samtal við aðrar stéttir og byggja brýr – ekki múra.

Við ætlum líka að halda áfram að vera hávær rödd í opinberri umræðu – af því það skiptir máli að almenningur viti hver við erum og fyrir hvað við stöndum.

Í því sambandi vil ég segja ykkur frá því að núna í vor munum við hefja sérstakt kynningar- og markaðsátak til að efla ásýnd sjúkraliða, laða nýja hópa að starfinu og styrkja ímynd stéttarinnar. Áherslan verður á raunverulegar sögur sjúkraliða, fjölbreytileika og fagmennsku – með viðtölum, myndböndum, skólakynningum og samstarfi við stofnanir.

Kæru þingfulltrúar og sjúkraliðar – það eruð þið sem haldið þessu félagi lifandi. Þið sem komið með hugmyndirnar, gagnrýnina, spurningarnar og stuðninginn. Þið sem standið með félögum okkar á vinnustöðum, haldið málefnunum á lofti og gerið félagið okkar að öflugri hreyfingu. Ég vil þakka ykkur öllum – sjúkraliðum, trúnaðarmönnum, stjórn félagsins og starfsfólki skrifstofunnar – fyrir ómetanlegt framlag, fyrir traustið og fyrir það að mæta hingað, taka þátt og láta ykkur málin varða. Og munið, - þið eruð afl sem mun knýja félagið áfram inn í framtíðina. Við höfum margt fram að færa – og við ætlum að gera það með öryggi og stolti. Við ætlum að halda áfram að standa saman, halda áfram með okkar markmið – og vinna markvisst að því að láta þau verða að veruleika.

Takk fyrir.