Lagagrundvöllur starfsréttinda sjúkraliða
Sjúkraliðar eru löggiltir heilbrigðisstarfsmenn sem starfa samkvæmt lögum, faglegum viðmiðum og siðareglum stéttarinnar. Þeir bera ábyrgð á eigin störfum og tryggja með þekkingu, umhyggju og fagmennsku að þjónusta við sjúklinga sé örugg, mannleg og í samræmi við hæstu faglegu kröfur.

Réttindi, skyldur og ábyrgð sjúkraliða byggja á eftirfarandi lögum og reglugerðum:
Lög nr. 34/2012 um heilbrigðisstarfsmenn,
Lög nr. 74/1997 um réttindi sjúklinga
Lög nr. 41/2007 um landlækni og lýðheilsu,
Lög nr. 55/2009 um sjúkraskrár