Beint í efni

Reglur deildar sjúkraliða með sérnám

Deild sjúkraliða með sérnám skal vinna að framgangi hjúkrunar, viðurkenningu á aukinni menntun sjúkraliða á viðkomandi sviði. Hún skal vera stjórn félagsins og nefndum til ráðgjafar. Stofnun Deildar sjúkraliða með sérnám, starfsreglur og starfssvið, þarf að hljóta staðfestingu stjórnar félagsins. Fulltrúi deildarinnar á rétt á að sitja fulltrúaþing félagsins sem áheyrnarfulltrúi með málfrelsi og tillögurétt um málefni er varða deildina sérstaklega.

  1. 1.gr.: Heiti deildar og starfsvettvangur

    Nafn deildarinnar er Deild sjúkraliða með sérnám. Deild sjúkraliða með sérnám er deild innan Sjúkraliðafélags Íslands. Starfsvettvangur deildarinnar og verkefni er að þjónusta alla sem lokið hafa a.m.k. eins árs sérnámi og hafa rétt til að bera starfsheitið sjúkraliði. Heimili og varnarþing deildarinnar er Reykjavík.

  2. 2. gr.: Réttur til aðildar að deildinni

    Aðild að deild sérhæfðra sjúkraliða eiga sjúkraliðar sem hafa lokið fagdiplómanámi eða sérnámi fyrir sjúkraliða, og hafa rétt til að bera starfsheitið sérhæfður sjúkraliði.

  3. 3. gr.: Lög deildarinnar

    Lög Sjúkraliðafélags Íslands eru jafnframt lög deildarinnar og félagsmanna hennar, eftir því sem við á. Reglur þessar skulu ávallt vera í samræmi við lög félagsins.

    Aðild að deild sérhæfðra sjúkraliða eiga sjúkraliðar sem hafa lokið fagdiplómanámi frá Háskólanum á Akureyri eða sérnámi sjúkraliða frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla.

  4. 4. gr.: Hlutverk deildarinnar

    Hlutverk deildarinnar og markmið eru þau sem kveðið er á um í 2. kafla laga Sjúkraliðafélags Íslands og ber deildinni og forystu hennar að vinna að framgangi þeirra stefnumiða á sínum  starfsvettvangi með því að:

    • halda uppi öflugu fræðslu og menningarstarfi innan vébanda sinna
    • efla gagnkvæman skilning og einingu meðal félagsmanna og annarra launamanna
    • veita félagsstjórn aðstoð við söfnun gagna og upplýsinga og annað sem hún kann að óska eftir.
  5. 5. gr.: Stjórn deildarinnar

    Stjórn deildarinnar skal kosin til tveggja ára á aðalfundi. Formaður er kosinn sérstaklega, en aðrir fulltrúar í stjórn skipta með sér verkum. Endurkjör stjórnarfulltrúa er heimilt.

  6. 6. gr.: Störf stjórnar

    Stjórn deildarinnar er tengiliður milli félaga deildarinnar og félagsstjórnar Sjúkraliðafélags Íslands. Formaður fagdeildar sérhæfðra sjúkraliða, hefur rétt á að sitja fundi félagsstjórnar með málfrelsi og tillögurétt ef á dagskrá hennar eru málefni er varða deildina eða félagsmenn hennar sérstaklega. Að loknu stjórnarkjöri skal formaður boða til stjórnarfundar. Stjórn skiptir með sér verkum.

  7. 7. gr.: Fjármál

    Stjórn deildarinnar skal gera fjárhagsáætlun og leggja fyrir aðalfund til samþykktar. Beiðni um fjárframlag úr aðalsjóði Sjúkraliðafélags Íslands, samkvæmt  samþykktri fjárhagsáætlun skal senda framkvæmdastjórn fyrir 1. febrúar ár hvert.

  8. 8. gr.: Aðalfundur deildarinnar

    Aðalfundur deildarinnar skal haldinn árlega á tímabilinu september  – desember. 

    Ársskýrsla deildarinnar skal senda framkvæmdastjórn fyrir 1. febrúar ár hvert ásamt fjárhagsáætlun og fjárbeiðni.

    Til aðalfundar skal boða með a.m.k. viknu fyrirvara. Fundurinn skal auglýstur á tryggilegan hátt. Þess skal getið í fundarboði hverjir séu í kjöri til formanns deildarinnar.

    Dagskrá aðalfundar:

    • Kosning fundarstjóra.
    • Skýrsla stjórnar um starfsemi deildarinnar.
    • Fjárhagsáætlun deildarinnar fyrir næsta starfsár.
    • Kosning formanns.
    • Kosning stjórnar.
    • Kosning fulltrúa deildarinnar til setu á fulltrúaþingi Sjúkraliðafélags Íslands samkvæmt ákvæðum  15. gr. laga félagsins.
    • Önnur mál.
  9. 9. gr.: Deildarfundir

    Deildarfundi skal halda svo oft sem þurfa þykir. Deildarfundi skal boða með minnst þriggja sólarhringa fyrirvara með tryggilegum hætti.

    Stjórn deildarinnar er skylt að boða til deildarfundar ef fimmtungur félagsmanna deildarinnar krefst þess og tilgreinir fundarefni.

  10. 10. gr.: Breyting á reglum deildarinnar

    Reglum má aðeins breyta á fulltrúaþingi. Tillögur til breytinga á þessum reglum skulu hafa borist stjórn Sjúkraliðafélags Íslands eigi síðar en sex vikum fyrir fulltrúaþing. Breytingar á reglunum öðlast ekki gildi fyrr en þær hafa hlotið staðfestingu fulltrúaþings Sjúkraliðafélags Íslands, að fenginni umsögn laganefndar félagsins

    Reglur deildarinnar voru samþykktar á stofnfundi Fagdeildar sjúkraliða með sérnám í hjúkrun í Borgarleikhúsinu 21. desember 2002 með fyrirvara um að lög Sjúkraliðafélags Íslands breytist og heimili stofnun deildarinnar.

    Fulltrúaþing 29. apríl  2025 og samþykktar þannig breyttar. 

    Reglur deildarinnar lagðar fram á fulltrúaþingi SLFÍ 31. maí 2007 og samþykktar þannig breyttar.
    Reglur deildarinnar lagðar fram á fulltrúaþingi 12. maí 2022 og samþykktar þannig breyttar
    Reglur deildarinnar lagðar fram á fulltrúaþingi 28. apríl 2026 og samþykktar þannig breyttar