Beint í efni
  1. 1. gr. Heiti sjóðsins og markmið

    Sjóðurinn heitir Orlofsheimilasjóður Sjúkraliðafélags Ísland.

    Orlofsheimilasjóður ber ábyrgð á rekstri og uppbyggingu orlofseigna félagsins auk framboðs á öðrum orlofsmöguleikum.

  2. 2. gr. Stjórn sjóðsins

    Orlofsheimilasjóður er eign Sjúkraliðafélags Íslands og fer stjórn félagsins með stjórn hans.

  3. 3. gr. Tekjur sjóðsins

    Sjóðurinn er fjármagnaður með iðgjöldum sem launagreiðandi greiðir til sjóðsins vegna hlutaðeigandi starfsmanna samkvæmt ákvæðum í kjarasamningum hverju sinni. Sjóðurinn skal ávaxtaður á þann hátt sem sjóðsstjórn telur öruggast og hagkvæmasta á hverjum tíma.

  4. 4. gr. Umsýsla

    Stjórn sjóðsins er heimilt að semja við aðra aðila um að sjá um daglega umsýslu hans, þar á meðal bókhald.

  5. 5. gr. Reikningar sjóðsins

    Orlofsheimilasjóður hefur sérstakt reikningshald og er undanþegin fjárskuldbindingum félagsins. Ársreikningur sjóðsins skal endurskoðaður og lagður fram til samþykktar á fulltrúaþingi félagsins. Reikningsár sjóðsins er almanaksárið.

  6. 6. gr. Breyting á reglum sjóðsins

    Reglum Orlofsheimilasjóðs má aðeins breyta á fulltrúaþingi félagsins, og skulu gilda sömu reglur um breytingu þeirra og á lögum félagsins.

    Reglur Orlofsheimilasjóðs lagðar fram til samþykktar á fulltrúaþingi
    Fulltrúaþing 18. maí 2021 og samþykktar þannig breyttar.